Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 100

18. júní 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 117 liður 4

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.Fundargerð hafnarstjórnar nr. 100 frá 18.júní samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Styrkbeiðni 2012 - Sjómannadagurinn

    Mál 1205126 Allur ferill málsins

    Erindi frá 24. maí 2012 þar sem Sjómannadagsráð Neskaupstaðar óskar eftir styrk vegna sjómannadagshátíðarhalda.  Hafnarstjórn samþykkti styrkbeiðnina.

  2. 2. Styrkbeiðni 2012

    Mál 1205141 Allur ferill málsins

    Erindi frá 29. maí 2012 þar sem Sjómannadagsráð Eskifjarðar óskar eftir styrk vegna sjómannadagshátíðarhalda. Hafnarstjórn samþykkti styrkbeiðnina.

  3. 3. Smábátahöfn Eskifirði

    Mál 0910146 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá opnun tilboða í yfirborðsfrágang við smábátahöfnina á Eskifirði sem opnað var 31. maí 2012.  Hafnarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

  4. 4. 730 Fjarðabyggð, Ægisgata 6

    Mál 1103085 Allur ferill málsins

    Erindi vísað til ákvörðunar hjá hafnarstjórn frá bæjarráðsfundi 18. júní 2012 er varðar kaup á húseignunum að Ægisgötu 6, en bæjarráð samþykkti fyrirliggjandi drög fyrir sitt leyti.  Framlögð drög að kaupsamningi milli Fjarðabyggðar og Machinery ehf. vegna kaupa Fjarðabyggðar á fasteignum að Ægisgötu 6 Reyðarfirði, landnúmer194-840 og fastanúmer 217-7483 að frátalinni 2.600 fermetra lóð eignarinnar, auk draga að yfirlýsingu um kauprétt Fjarðabyggðar að Hafnargötu 6 Reyðarfirði, landnúmer 158-477 og fastanúmer 217-746.  Hafnarstjórn samþykkir kaup á eignunum til niðurrifs í samræmi við fyrirliggjandi drög að kaupsamningi.  Ákvörðuninni er vísað til umfjöllunar og staðfestingar bæjarstjórnar ásamt viðauka við fjárhagsáætlun 2012.

  5. 5. Hafnarmál á Norðfirði

    Mál 1111028 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um endurskipulagningu og stækkun Norðfjarðarhafnar. Fyrir fundinum lá minnisblað frá fundi með notendum hafnarinnar í Safnahúsinu á Norðfirði 1. júní 2012 auk skýrslu Siglingastofnunar þar sem settar eru fram hugmyndir að stækkun, kostnaðarmati og tímaplani. Hafnarstjórn samþykkir að fara í framkvæmdir við stækkun Norðfjarðarhafnar í samræmi við tillögu 3 með framtíðarsýn 1. Framkvæmdastjóra falið að afla nánari upplýsinga um áætlaðan kostnað sem tilfellur á árinu.  Ákvörðuninni er vísað til umfjöllunar og staðfestingar bæjarstjórnar ásamt viðauka við fjárhagsáætlun 2012.