Tillaga bæjarstjóra um vorhreinsun í tengslum við útgáfu vorbæklings
Mál 1203157 Fyrst á dagskrá 2. apríl 2012, síðast 10. maí 2012. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 287 liður 10
Tillaga um vorhreinsun í tengslum við útgáfu vorbæklings
Bæjarráð samþykkir að farið verði í sérstakt átak í umhverfismálum í tengslum við útgáfu vorbæklings 2012. Sérstaklega verði beint sjónum að bæjarkjörnunum, umhverfi fyrirtækja og lóða í þeirra umsjá, lóða í umsjón einstaklinga og opinna svæða sem eru á ábyrgð bæjarfélagsins. Hvatt verði sérstaklega til umhverfisvitundar og mikilvægi þess að fallegt og snyrtilegt umhverfi séu lífsgæði. Umfjöllun vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarnefndar og framkvæmd verði á hendi framkvæmdasviðs sem vinni verkefnaáætlun til að stuðla að framgangi verkefnisins.
-
Bæjarstjórn, fundur 112 liður 2.10
Fundargerðin „Bæjarráð - 287“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Tillaga um vorhreinsun í tengslum við útgáfu vorbæklings
-
Hafnarstjórn, fundur 98 liður 9
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 2. apríl sl. að farið verði í sérstakt átak í umhverfismálum í tengslum við útgáfu vorbæklings 2012. Sérstaklega verði beint sjónum að bæjarkjörnunum, umhverfi fyrirtækja og lóða í þeirra umsjá, lóða í umsjón einstaklinga og opinna svæða sem eru á ábyrgð bæjarfélagsins. Hvatt verði sérstaklega til umhverfisvitundar og mikilvægi þess að fallegt og snyrtilegt umhverfi séu lífsgæði. Bæjarráð vísaði umfjöllun um samþykktina til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarnefndar og framkvæmd verði á hendi framkvæmdasviðs sem vinni verkefnaáætlun til að stuðla að framgangi verkefnisins. Hafnarsjóður fagnar framtaki bæjarráðs. Jafnframt bendir hafnarstjórn á að í framkvæmdaáætlun ársins 2012 eru ætlaðar um 60 milljónir króna til umhverfisfrágangs við umhverfi hafna.
-
Bæjarstjórn, fundur 114 liður 6.9
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 98“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.