Forkaupsréttur að lóð nr.4 við Hraun
Mál 1203024 Fyrst á dagskrá 12. mars 2012, síðast 29. mars 2012. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Í heiti málsins: Lóðir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 284 liður 5
Fram lagt erindi frá Eimskipum hf. þar sem óskað er eftir að hafnarsjóður falli frá forkaupsrétti á eignum á lóð nr. 4 við Hraun en félagið hefur skrifað undir kaupsamning um eignina.Bæjarráð samþykkir að hafnarsjóður nýti ekki forkaupsrétt. Vísað til hafnarstjórnar til staðfestingar.
-
Bæjarstjórn, fundur 110 liður 2.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 284“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Hafnarstjórn, fundur 97 liður 3
Erindi frá Eimskipum dags. 7. mars 2012 þar sem félagið óskar eftir að hafnarstjórn Fjarðabyggðar falli frá forkaupsrétti vegna kaupa félagsins á eignum á lóðinni að Hrauni 4, Fjarðabyggð. Hafnarstjórn samþykkir að falla frá forkaupsrétti við sölu eignanna, en vill að skýrt komi fram að komi til sölu eigna að nýju síðar standi forkaupsréttarheimild hafnarsjóðs virk áfram. Aðeins er verið að taka afstöðu til þessarar sölu að þess sinni.
-
Bæjarstjórn, fundur 111 liður 7.3
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 97“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.