Hafnarstjórn, fundur 95
28. febrúar 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 110 liður 4
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umræðu og afgreiðslu saman.Enginn tekinn til máls. Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum
Mál 1112011 Allur ferill málsins
Gerð grein fyrri stöðu mála varðandi gerð áætlunar um meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum. Kynnt.
-
2. Fyrirspurn um innheimtu vörugjalda
Mál 1202114 Allur ferill málsins
Erindi frá Nesskipum dags. 17.febrúar 2012 varðandi innheimtu vörugjalda. Hafnarstjórn telur undanþágu um niðurfellingu vörugjalda ekki eiga við í þessu tilviki og hafnar erindinu.
-
3. Umsókn um uppsetningu á olíutanka og afgreisðlubúnaði í Norðfjarðarhöfn.
Mál 1202066 Allur ferill málsins
Erindi frá Olís dags. 7. febrúar 2012 þar sem óskað er efir heimild til að setja upp aðstöðu til olíuafgreiðslu fyrir smábáta í innrihöfninni á Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkir þær hugmyndir sem voru til umræðu á fundinum og felur framkvæmdastjóra að leysa málið.
-
4. Umsókn um lóð nr. 6 að Hrauni
Mál 1202028 Allur ferill málsins
Erindi frá Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd dags. 15. febrúar 2012 þar sem óskað er umsagnar hafnarstjórnar vegna umsóknar Machinery ehf um lóð að Hrauni við Mjóeyrarhöfn með erindi dags. 2. og 3. febrúar 2012. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að afla frekari upplýsinga um fyrirhugaða starfsemi í húsnæðinu og staðfestingar á samkomulagi við nefnda aðila um nýtingu hússins áður en til ákvarðanatöku kemur.
-
5. Starfsmannamál hafnanna
Mál 1002012 Allur ferill málsins
Farið yfir vöktunarmál Mjóeyrarhöfn og sumarstörf. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna að starfslýsingu og samkomulagi við Eimskip.