Bæjarráð, fundur 281
20. febrúar 2012, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 109 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Til máls tóku Valdimar O. Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Guðmundur Þorgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Sævar Guðjónsson og Esther Ösp Gunnarsdóttir.Fundargerð bæjarráðs, nr. 281 frá 20.febrúar 2012, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Sameining Austfirskra stoðstofnana (AST) - fundargerðir og skýrsla
Mál 1104003 Allur ferill málsins
Á fundinn er mættur Valdimar O Hermannsson. Drög að skipulagsskrá fyrir stoðstofnanir á Austurlandi, AST lögð fram til kynningar.Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
2. Áhrif á landsbyggðina af breytingum á hlutverki Reykjavíkurflugvellar
Mál 1202077 Allur ferill málsins
Fram lögð tillaga bæjarstjóra um að taka þátt í vinnslu skýrslu þar sem dregin verða fram áhrif á íbúa og fyrirtæki á landsbyggðinni ef Reykjavíkurflugvöllur yrði lagður af í núverandi mynd. Meðal þátta sem metnir eru: Breytingar og áhrif á aðgengi íbúa landsbyggðar, atvinnulífs og staðbundinnar stjórnsýslu.Bæjarráð samþykkir að taka þátt í vinnslu skýrslunnar. Kostnaði að fjárhæð 550.000 kr. mætt með framlagi af liðnum óráðstafað.
-
3. Menningarsamningur sveitarfélaga á Austurlandi og ríkisins 2011
Mál 1009174 Allur ferill málsins
Kynntur viðauki við menningarsamning sveitarfélaga á Austurlandi þar sem auknu fjármagni er veitt til málaflokksins á árunum 2012 og 2013 sem nemur 15,5 milljónir kr.Bæjarráð fagnar að auknu fjármagni sé veitt til menningarmála á svæðinu. Bæjarráð vísar erindi jafnframt til atvinnu- og menningarnefndar.
-
4. Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2011-2012
Mál 1112080 Allur ferill málsins
Fundargerð samgöngunefndar SSA nr. 2 frá 8. febrúar s.l. lögð fram til kynningar. Bæjarstjóri fór yfir þær umræður sem áttu sér stað á fundinum.
-
5. Fundagerðir Skólaskrifstofu Austurlands 2011 - 2012
Mál 1104004 Allur ferill málsins
Til kynningar fundargerð framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 14. febrúar s.l.  Vísað til félagsmálanefndar og fræðslu-og frístundanefndar
-
6. Landsþingsfulltrúar og 26.landsþing 2012
Mál 1202084 Allur ferill málsins
Boðað er til 26. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 23. mars n.k. í Reykjavík.Fram lagt til kynningar.
-
7. Samningur um sjúkraflutninga 2012
Mál 1202080 Allur ferill málsins
Samningur um sjúkraflutninga á milli Heilbrigðisstofnunar Austurlands og Fjarðabyggðar fram lagður til staðfestingar. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.
-
8. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 36
Fundargerð er lögð fram til kynningar.