Bæjarráð, fundur 179
5. janúar 2010, kl. 09:15 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 66 liður 1
Til máls tóku: Svanhvít Aradóttir, Sigrún Birna Björnsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Helga Jónsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson, Jens Garðar Helgason. Bókun: Undirrituð er alfarið á móti því að ráðið sé í störf innan stjórnsýslu Fjarðabyggðar án auglýsingar hvort sem er nú eða áður og getur því ekki samþykkt lið nr. 8 í fundargerð bæjarráðs nr. 183. Skal þess þó getið að þessi afstaða er með öllu óháð persónum þeim sem í þau störf hafa ráðist. Svanhvít Aradóttir (sign) Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Styrkur til Salthússins
Mál 0911138 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði forstöðumanns stjórnsýslu frá 2.desember um styrk til Salthússins sbr. reglur um styrki til greiðslu fasteignagjalda.
-
2. Umsókn Björgunarsveitarinnar Gerpis um styrk til greiðslu fasteignagjalda
Mál 0911154 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði forstöðumanns stjórnsýslu frá 18.desember um styrki til björgunarsveitanna í Fjarðabyggð sbr. reglur um styrki til greiðslu fasteignagjalda.
-
3. Ósk um niðurfellingu á leigu Fjarðabyggðarhallar
Mál 0912087 Allur ferill málsins
Beiðni Knattspyrnudómarafélags Austurlands frá 21.desember um niðurfellingu á leigu í Fjarðabyggðarhöllinni. Vísað til umsagnar æskulýðs- og íþróttafulltrúa.
-
4. Umsókn Golfklúbbs Fjarðabyggðar um framkvæmdastyrk 2010
Mál 0912039 Allur ferill málsins
Bréf Golfklúbbs Fjarðabyggðar frá 30.nóvember er varðar framkvæmdastyrk til golfvallagerðar en erindi var vísað frá MÍF. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að afla umsagnar og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
5. Umsókn um styrk vegna reksturs á leitarhundum Björgunarsveitarinnar Gerpis
Mál 0911153 Allur ferill málsins
Bréf Björgunarsveitarinnar Gerpis frá 27.nóvember sem vísað var frá MÍF. Bæjarráð samþykkir að styrkja rekstur leitarhunda Björgunarsveitarinnar Gerpis um 300.000 á árinu 2009.
-
6. Umsókn um styrk vegna reksturs Björgunarsveitarinnar Gerpis á árinu 2009
Mál 0911155 Allur ferill málsins
Forstöðumanni stjórnsýslu falið að fara yfir ónýttar fjárheimildir á árinu 2009 sem eru til ráðstöfunar til styrktar björgunarsveitanna í Fjarðabyggð. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
7. Fundargerð 4.stjórnarfundar NA 2009
Mál 0912067 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
8. Þjónustusamningur um Norðfjarðarflugvöll
Mál 0904038 Allur ferill málsins
Samningur frá 14.desember lagður fram.
-
9. Greinargerð Náttúrustofu Vesturlands um umhverfisvottun Íslands
Mál 0912089 Allur ferill málsins
Lagt fram og vísað til kynningar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
-
10. 770. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11.desember.
Mál 0912101 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
11. Læknisþjónusta í Fjarðabyggð
Mál 0903114 Allur ferill málsins
Framlagt bréf heilbrigðisráðuneytisins til Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá 21.desember vegna skýrslu sálfræðinganna Einars Gylfa Jónssonar og Þórkötlu Aðalsteinsdóttur um úttekt á starfsemi HSA í Fjarðabyggð og tillögur þeirra.
-
12. Golfklúbbur Eskifjarðar - Golfklúbburinn Gríma
Mál 1001001 Allur ferill málsins
Minnisblað Regula lögmannsstofu frá 4.janúar er varðar málefni golfvallarins á Eskifirði. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði Regula um riftun samnings við Golfklúbb Eskifjarðar.
-
13. Tillögur um skipulagðar samgöngur nemenda í VA skólaárið 2009-2010
Mál 0908047 Allur ferill málsins
Díana Mjöll Sveinsdóttir vék af fundi. Þennan lið fundarins sátu Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála og Katrín Dóra Þorsteinsdóttir fyrrum starfandi fjármálastjóri var í símasambandi. Rætt um fyrirkomulag skólaaksturs í VA á vorönn 2010. Bæjarráð sammála um að á grundvelli upplýsinga sem fram komu á fundinum, og á grundvelli samnings við VA, verði skólaakstur í VA með óbreyttum hætti, á vorönn 2010. Skólaakstur verði endurskoðaður fyrir næsta skólaár.
-
14. Mannvirkjanefnd - 28
Fundargerð lögð fram.
-
15. Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd - 31
Fundargerð lögð fram.