Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMannvirkjanefnd

Mannvirkjanefnd, fundur 28

22. desember 2009, kl. 12:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Jóhann Eðvald Benediktsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 179 liður 14

    Fundargerð lögð fram.

  • Bæjarstjórn, fundur 66 liður 8

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Helga Jónsdóttir, Valdimar O Hermannsson.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Hækkun á dreifigjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar

    Mál 0912071 Allur ferill málsins

    Farið yfir tillögu mannvirkjanefndar dagsett 22. desember um hækkun á dreifigjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar. Þar er gert ráð fyrir að hækka gjaldskránna um 6 % og að hún taki gildi frá og með 1. janúar 2010. Gjaldskrárhækkun núna kemur til vegna almennrar verðlagsþróunar í landinu, en gert er ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 7 % frá miðju ári 2009 fram á mitt ári 2010. Ef þær forsendur ganga eftir þá mun ekki vera nauðsynlegt að hækka gjaldskrá dreifingar aftur árið 2010. Þessar forsendur eru í samræmi við það sem fjármálaráðuneytið hefur gefið út. Ástæða þess að hækkunin núna er 6 % en ekki 7 % eins og vísitöluhækkunin er sú að Rafveita Reyðarfjarðar er en að vinna til baka að hún fór yfir tekjumörk sín árin 2005, 2006 og 2007, sem kom til vegna tekna af heimtaugum. Mannvirkjanefnd samþykkir að vísar tillögu til afgreiðslu bæjarráðs.