Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2010

Hækkun á dreifigjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar

Mál 0912071 Fyrst á dagskrá 22. desember 2009, síðast 4. febrúar 2010. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Mannvirkjanefnd.

Í heiti málsins: ReyðarfjörðurFjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2009

    Mannvirkjanefnd, fundur 28 liður 1

    Farið yfir tillögu mannvirkjanefndar dagsett 22. desember um hækkun á dreifigjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar. Þar er gert ráð fyrir að hækka gjaldskránna um 6 % og að hún taki gildi frá og með 1. janúar 2010. Gjaldskrárhækkun núna kemur til vegna almennrar verðlagsþróunar í landinu, en gert er ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 7 % frá miðju ári 2009 fram á mitt ári 2010. Ef þær forsendur ganga eftir þá mun ekki vera nauðsynlegt að hækka gjaldskrá dreifingar aftur árið 2010. Þessar forsendur eru í samræmi við það sem fjármálaráðuneytið hefur gefið út. Ástæða þess að hækkunin núna er 6 % en ekki 7 % eins og vísitöluhækkunin er sú að Rafveita Reyðarfjarðar er en að vinna til baka að hún fór yfir tekjumörk sín árin 2005, 2006 og 2007, sem kom til vegna tekna af heimtaugum. Mannvirkjanefnd samþykkir að vísar tillögu til afgreiðslu bæjarráðs.

  2. Bæjarráð, fundur 178 liður 1

    Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu mannvirkjanefndar um 6% hækkun dreifigjaldskrár Rafveitu Reyðarfjarðar.

  3. 2010

    Bæjarstjórn, fundur 66 liður 8.1

    Fundargerðin „Mannvirkjanefnd - 28“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is