Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 180

12. janúar 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Læknisþjónusta í Fjarðabyggð

    Mál 0903114 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu fulltrúar Hollvinasamtaka heilsugæslunnar í Fjarðabyggð þeir Björn Grétar Sveinsson og Gunnar Hjaltason. Rætt um málefni heilsugæslunnar í Fjarðabyggð.  Fyrir liggur að fundur verður með fulltrúum HSA á næstunni.

  2. 2. Útboð trygginga Fjarðabyggðar

    Mál 0910147 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu forstöðukona fjármála og Björgvin Valdimarsson starfsmaður á fjármálasviði.  Framlögð tillaga fjármálasviðs frá 7.janúar vegna útboðs trygginga en tilboð í tryggingar Fjarðabyggðar voru opnuð 5. janúar s.l. hjá Ríkiskaupum. Sjóvá var með lægsta tilboðið 17,8 mkr.  Bæjarráð samþykkir framkomna tillögu um að gengið verði til samninga við lægstbjóðenda, enda sé það í samræmi við efni útboðslýsingar um val á tilboðum.

  3. 3. Tilboð vegna Bankakerfis, Bæjardyra og uppfærslu í Navison 5.01

    Mál 1001023 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat forstöðukona fjármála. Framlagt minnisblað forstöðukonu fjármála frá 12.janúar um uppfærslu á Navision bókhaldskerfi.  Kostnaði verður mætt af sameiningarframlagi sveitarfélagsins á árinu 2010. Bæjarráð samþykkir tilboð Maritech og felur forstöðumanni mannauðs- og upplýsingatæknimála að ganga frá samningum vegna þessa.

  4. 4. Sorpmál - Samstarf við Fljótsdalshérað

    Mál 0905099 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu umhverfisstjóri og forstöðukona fjármála. Farið var yfir stöðu verkefnisins. Næsti fundur í samstarfshópnum verður 13.janúar. Bæjarráð felur umhverfisstjóra að leggja fram, fyrir fund bæjarráðs 26.janúar, yfirlit yfir stöðu málsins.

  5. 5. Akstur nemenda í VA.

    Mál 0908047 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu umhverfisstjóri og forstöðukona fjármála.  Umhverfisstjóra falið að segja upp skriflega, samningi um skólaakstur í VA, frá og með lokum vorannar 2010. Skólaakstur í VA verði boðinn út í júní nk.

  6. 6. Ósk um niðurfellingu á leigu Fjarðabyggðarhallar

    Mál 0912087 Allur ferill málsins

    Umsögn æskulýðs- og íþróttafulltrúa lögð fram til kynningar og vísað til MÍF.

  7. 7. Umsókn Golfklúbbs Fjarðabyggðar um framkvæmdastyrk 2010

    Mál 0912039 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu umhverfisstjóri og forstöðukona fjármála. Lagt fram minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 7.janúar.  Á grundvelli fyrri samþykkta hafnar bæjarráð beiðni Golfklúbbs Fjarðabyggðar um uppbyggingarstyrk.

  8. 8. Samningur við björgunarsveitirnar í Fjarðabyggð

    Mál 1001024 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samstarfssamningi við björgunarsveitirnar í Fjarðabyggð og minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 7.janúar vegna fyrirkomulags á greiðslu rekstrarstyrks til sveitanna á árinu 2009.  Bæjarráð samþykkir að rekstrarstyrkur til björgunarsveitanna á árinu 2009 verði kr. 467.886 og felur forstöðumanni jafnframt að fara yfir drög að samningi með fulltrúum björgunarsveitanna og leggja fyrir bæjarráð síðar.

  9. 9. Afnot af sal eldri borgara Melgerði 13

    Mál 1001006 Allur ferill málsins

    Beiðni Bútasaumsklúbbsins Spretts frá 3.janúar um endurgjaldslaus afnot af sal í húsnæði eldri borgara Reyðarfirði. - Minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu lagt fram til kynningar.  Erindi vísað til félagsþjónustu og afgreiðslu í mannvirkjanefnd.

  10. 10. Fasteignamat sem grundvöllur fráveitugjalds

    Mál 1001008 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.desember 2009.