Bæjarráð, fundur 171
17. nóvember 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 64 liður 2
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Hjallaleira 12 - lóðaleigusamningur - Bréf Hringrásar
Mál 0909006 Allur ferill málsins
Beiðni Hringrásar um að 9.liður lóðasamnings um Hjallaleiru 12 Reyðarfirði verði felldur niður. Bæjarráð fellst á beiðni Hringrásar.
-
2. Tillaga um breytingar á leyfum til dragnótaveiða í Eskifirði og Reyðarfirði
Mál 0911062 Allur ferill málsins
Tillaga Sævars Guðjónssonar og Óskars Þórs Hallgrímssonar um breytingar á leyfum til dragnótaveiða í Eskifirði og Reyðarfirði sem vísað var til bæjarráðs frá hafnarstjórn 10.nóvember."Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að framkvæmdastjóra Fjarðabyggðahafna verði falið að ræða við Sjávarútvegsráðuneytið og / eða Fiskistofu um breytingar á leyfum til dragnótaveiða í Eskifirði og Reyðarfirði. Leggjum við til að Eskifjörður og Reyðarfjörður verði opnaðir fyrir dragnótaveiðum, báta allt að 12 brúttótonnum, frá og með 16.maí til 31.janúar samanber nærliggjandi firði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Greinargerð:Á Eskifirði eru dragnótaveiðar bannaðar allt árið innan línu sem dregin er milli Mjóeyrar og Skeleyrar. Á Reyðarfirði eru dragnótaveiðar bannaðar allt árið innan línu, sem dregin er frá Ljós í Handarhald, sunnan fjarðarins.Eftir sem áður yrðu Reyðarfjörður og Eskifjörður lokaðir dragnótaveiðum frá og með 1.febrúar til og með 15.maí innan línu sem dregin er réttvísandi norður frá Vattarnesvita en opnir utan þess tímabils. Bæjarráð vísar tillögu til umfjöllunar í bæjarstjórn.
-
3. Ósk um leigu á félagsheimilinu Skrúði
Mál 0908092 Allur ferill málsins
Gestur Valgeir Gestsson og Bjarni Rafn Ingvason hafa óskað eftir að taka félagsheimilið Skrúð á leigu. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að kanna beiðnina betur í samráði við mannvirkjasvið, gera drög að leigusamningi og leggja fyrir bæjarráð.
-
4. Tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins í starfshóp SSA og Sveitarstjórnarráðuneytisins
Mál 0911042 Allur ferill málsins
Fulltrúi Fjarðabyggðar í starfshópnum "Austurland eitt sveitarfélag" verður Smári Geirsson.
-
5. Minnisblað um fjárlagafrumvarp 2010
Mál 0911064 Allur ferill málsins
Minnisblað Gunnlaugs Júlíussonar hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga frá 10.nóvember lagt fram til kynningar.
-
6. Fundagerð 87. stjórnarfundar HAUST
Mál 0911039 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
7. Fundagerð 768. stjórnarfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Mál 0911041 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
8. Byggðakvóti í Fjarðabyggð
Mál 0911063 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna vegna fundar með smábátasjómönnum frá 13.nóvember. Varðandi b. og c. lið 1.greinar reglugerðar 557/2009 vill Jens Garðar Helgason miða við 17.nóvember 2009, Guðmundur Þorgrímsson vill að ákvæði í reglugerðinni gildi þ.e. 1.júní 2009 og Díana Mjöll Sveinsdóttir situr hjá. Úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2008/2009 tekur því mið af reglugerð nr.557/2009 og miðast við 1.júní 2009.
-
9. Læknisþjónusta í Fjarðabyggð
Mál 0903114 Allur ferill málsins
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Þennan lið fundarins sátu Björn Grétar Sveinsson og Grétar Rögnvarsson forsvarsmenn íbúafundar sem haldinn var í Kirkju- og menningarmiðstöðinni 4.nóvember. Rætt um framlagða ályktun íbúafundarins þar sem samþykkt var að skora á bæjarstjórn Fjarðabyggðar að hefja nú þegar viðræður við heilbrigðisyfirvöld um að Fjarðabyggð taki við stjórn heilsugæslu í Fjarðabyggð (H.S.F) með samningum við viðkomandi yfirvöld.
-
10. Aðalfundur fulltrúaráðs Héraðsskjalasafns Aust.2009
Mál 0911095 Allur ferill málsins
Bæjarráð felur bæjarstýru að skipa fulltrúa Fjarðabyggðar á aðalfund fulltrúaráðs Héraðsskjalasafns Austurlands fimmtudaginn 26.nóvember kl.15:00 í Végarði í Fljótsdal.