Bæjarráð, fundur 172
24. nóvember 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 64 liður 3
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Vetrarþjónusta Vegagerðarinnar 2010
Mál 0911114 Allur ferill málsins
Framlagðar upplýsingar um breytta vetrarþjónustu Vegagerðarinnar á árinu 2010. Málið rætt og tekið fyrir á næsta fundi.
-
2. Girðing utan um Kolfreyjustaðarkirkjugarð
Mál 0911094 Allur ferill málsins
Bréf Kolfreyjustaðarsóknar frá 16.nóvember vegna kostnaðar við gerð girðingar um Kolfreyjustaðarkirkjugarð. Máli vísað til mannvirkjasviðs.
-
3. Þjónusta á flugvöllum við sjúkraflug
Mál 0911118 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Heilbrigðisráðuneytisins til Mýflugs frá 16.nóvember. Bæjarstýru falið að ræða efni bréfsins við heilbrigðisráðuneytið.
-
4. Yfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
Mál 0911107 Allur ferill málsins
Ósk frá SSA um tilnefningu í starfshóp vegna undirbúnings við yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Bæjarráð sammála um að fulltrúi frá félagsþjónustusviði taki sæti í starfshópnum.
-
5. Atvinnuleysi í október 2009
Mál 0911098 Allur ferill málsins
Upplýsingar um atvinnuleysi í október lagðar fram til kynningar.
-
6. Franski spítalinn við Hafnarnes
Mál 0910066 Allur ferill málsins
Bæjarstýra fór yfir stöðu málsins.
-
7. Ósk um viðræður um nýjan samstarfssamning vegna reksturs Markaðsstofu Austurlands
Mál 0910104 Allur ferill málsins
Fulltrúar frá Markaðsstofu Austurlands þær Elfa Hlín Pétursdóttir gjaldkeri og Ásta Þorleifsdóttir framkvæmdarstjóri sátu þennan lið fundarins. Díana Mjöll vék af fundi undir þessum lið. Bæjarstýra gerði grein fyrir 5% niðurskurði á framlögum til sameiginlegra verkefna. Ásta fór yfir og lagði fram yfirlit yfir starfsemi og útgáfu markaðsstofunnar og hvað er framundan í starfseminni. Bæjarráð er tilbúið að framlengja samninginn tímabundið með 5% lækkun á íbúaframlagi.
-
8. Þjónustugáttir í bókasöfnum - sameining bæjarskrifstofu
Mál 0911132 Allur ferill málsins
Forstöðumaður mannauðsmála sat þennan lið fundarins. Rætt um framkvæmd lokunar bæjarskrifstofunnar í Neskaupstað. Valdimar vék af fundi kl.11:20.
-
9. Ályktun frá STAF vegna lokun starfstöðvar í Neskaupstað
Mál 0911139 Allur ferill málsins
Ályktun Starfsmannafélags Fjarðabyggðar frá 24.nóvember barst inn á fundinn.
-
10. Fundargerð mannvirkjanefndar nr.25
Fundargerð lögð fram.
-
11. Fundargerð hafnarstjórnar nr.64
Fundargerð lögð fram.
-
12. Fundargerð öldrunarþjónustunefndar nr.15
Fundargerð lögð fram.