Bæjarráð, fundur 173
30. nóvember 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 64 liður 4
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Læknisþjónusta í Fjarðabyggð
Mál 0903114 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sat Stefán Þórarinsson yfirlæknir hjá HSA. Rætt um málefni heilsugæslunnar í Fjarðabyggð.
-
2. Undirbúningur fjárhagsáætlunar fyrir Fjarðabyggð - 2010
Mál 0910092 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála og Björgvin Valdimarsson sérfræðingur á fjármálasviði. Jóna lagði fram og fór yfir yfirlit yfir tekjuáætlun Fjarðabyggðar 2010. Ákvarðanir um forsendur fjárhagsáætlunar og hækkanir á gjaldskrám verða teknar á fundi bæjarráðs á morgun. Jóna fór einnig yfir greiningu á þjónustu Fjarðabyggðar samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2009.