Bæjarráð, fundur 174
1. desember 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 64 liður 5
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Undirbúningur fjárhagsáætlunar fyrir Fjarðabyggð - 2010
Mál 0910092 Allur ferill málsins
Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála og Björgvin Valdimarsson sérfræðingur á fjármálasviði sátu þennan lið fundarsins og fóru yfir forsendur fjárhagsáætlunar og drög að úthlutun fjárhagsramma vegna ársins 2010. Fjárhagsrammar verða sendir stjórnendum síðar í dag og nefndarfundir verða haldnir í næstu viku. Skil til fjármálasviðs eru síðan seinni hluta næstu viku og því næst fær bæjarráð áætlanirnar aftur til umfjöllunar.
-
2. Leiruvogur 2 - umsókn um breytingu á lóð
Mál 0911146 Allur ferill málsins
Umsókn frá Leirunni ehf. frá 24.nóvember, um stækkun á lóð nr. 2 við Leiruvog á Reyðarfirði og greinargerð skipulagsfulltrúa þar sem lagt er til að fallist sé á umbeðna stækkun enda er hún í samræmi við deiliskipulag. Bæjarráð samþykkir stækkun á lóðinni um 450 m2, úr 2.700 m2 í 3.150 m2, sbr. meðfylgjandi lóðarblöð.
-
3. Útboð - Sorp 2009
Mál 0911082 Allur ferill málsins
Staðgengill umhverfisstjóra sat þennan lið fundarins. Bæjarráð samþykkir framlagða samþykkt um meðhöndlun úrgangs sem vísað var frá umhverfis-og skipulagsnefnd og samþykkir einnig breytingar á opnunartíma söfnunarstöðva.
-
4. Tillögur um skipulagðar samgöngur nemenda í VA og íþróttahópa skólaárið 2009-2010
Mál 0908047 Allur ferill málsins
Starfandi umhverfisstjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað frá 1.desember 2009 um fyrirkomulag skólaaksturs í Verkmenntaskóla Austurlands á haustönn 2009. Bæjarráð felur starfandi umhverfisstjóra að ganga frá samkomulagi við VA og akstursaðila, samþykkir áætlaðan kostnað á vorönn 2010 og vísar honum til fjárhagsáætlunar. Bæjarráð bendir á að kanna eigi samkvæmt fyrri samþykkt fjölda nemenda á suðurfjörðum sem hyggjast nýta akstur í VA á vorönn 2010 og felur umhverfisstjóra að gera þessa könnun.
-
5. Styrkur til Salthússins
Mál 0911138 Allur ferill málsins
Beiðni Varbergs ehf. - vegna starfsemi Salthússins Fjarðarbraut 40 Stöðvarfirði - frá 19.nóvember um styrk vegna fasteignagjalda. Bæjarráð óskar eftir umsögn frá forstöðumanni stjórnsýslu og að drög að reglum um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts verði lagðar fyrir næsta fund.
-
6. Notkun á félagsheimilinu Valhöll
Mál 2009-02-10-194 Allur ferill málsins
Bæjarráð ítrekar fyrri ákvörðun um flutning Knellunnar í húsnæði gömlu bæjarskrifstofunnar á Eskifirði og felur æskulýðs- og íþróttafulltrúa að hefja flutning sem fyrst þannig að hægt verði að hefja starfsemi með sóma og fullri starfsemi 22.febrúar 2010.
-
7. Mótmæli starfsfólks vegna lokunar skrifstofu Fjarðabyggðar í Neskaupstað
Mál 0911148 Allur ferill málsins
Forstöðukona fjármála og mannvirkjastjóri sátu þennan lið fundarins. Framlagt svar bæjarráðs við bréfi átta starfsmanna bæjarskrifstofunnar í Neskaupstað þar sem lokun skrifstofunnar er mótmælt.
-
8. Þjónustugáttir í bókasöfnum - sameining bæjarskrifstofu
Mál 0911132 Allur ferill málsins
Forstöðukona fjármála og mannvirkjastjóri sátu þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 30.nóvember vegna lokunar bæjarskrifstofu í Neskaupstað, um samanburð á möguleikum á starfsaðstöðu í Neskaupstað þegar upp koma sérstakar aðstæður. Í tengslum við ákvörðun bæjarráðs, um lokun bæjarskrifstofu í Neskaupstað sem tekin var á fundi bæjarráðs 12.nóvember, er ráðið sammála um að stefnt skuli að sameinuð bæjarskrifstofa á Reyðarfirði taki til starfa í desember samkvæmt fyrirliggjandi aðgerðaáætlun.
-
9. Fundargerð félagsmálanefndar 23.11.2009
Mál 0911137 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram.
-
10. Fundargerð fræðslunefndar nr.23
Fundargerð lögð fram.
-
11. Fundargerð menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar nr.29
Fundargerð lögð fram.
-
12. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.37
Fundargerð lögð fram.