Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2009

Tillaga um breytingar á leyfum til dragnótaveiða í Eskifirði og Reyðarfirði

Mál 0911062 Fyrst á dagskrá 17. nóvember 2009, síðast 21. desember 2009. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: EskifjörðurReyðarfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2009

    Bæjarráð, fundur 171 liður 2

    Tillaga Sævars Guðjónssonar og Óskars Þórs Hallgrímssonar um breytingar á leyfum til dragnótaveiða í Eskifirði og Reyðarfirði sem vísað var til bæjarráðs frá hafnarstjórn 10.nóvember."Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að framkvæmdastjóra Fjarðabyggðahafna verði falið að ræða við Sjávarútvegsráðuneytið og / eða Fiskistofu um breytingar á leyfum til dragnótaveiða í Eskifirði og Reyðarfirði.  Leggjum við til að Eskifjörður og Reyðarfjörður verði opnaðir fyrir dragnótaveiðum, báta allt að 12 brúttótonnum, frá og með 16.maí til 31.janúar samanber nærliggjandi firði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Greinargerð:Á Eskifirði eru dragnótaveiðar bannaðar allt árið innan línu sem dregin er milli Mjóeyrar og Skeleyrar.  Á Reyðarfirði eru dragnótaveiðar bannaðar allt árið innan línu, sem dregin er frá Ljós í Handarhald, sunnan fjarðarins.Eftir sem áður yrðu Reyðarfjörður og Eskifjörður lokaðir dragnótaveiðum frá og með 1.febrúar til og með 15.maí innan línu sem dregin er réttvísandi norður frá Vattarnesvita en opnir utan þess tímabils. Bæjarráð vísar tillögu til umfjöllunar í bæjarstjórn.

  2. Bæjarstjórn, fundur 64 liður 2.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 171“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is