Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 170

12. nóvember 2009, kl. 08:30 til 12:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 64 liður 1

    Til máls tóku: Helga Jónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Smári Geirsson, Jens Garðar Helgason, Guðmundur Rafnkell Gíslason, Guðmundur Þorgrímsson,  Þorbergur Hauksson, Sigrún Birna Björnsdóttir, Sævar Guðjónsson. Bókun um lokun á bæjarskrifstofum á Norðfirði<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /> Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma þau vinnubrögð sem höfð hafa verið við úrlausn málefnis bæjarskrifstofunnar í Neskaupstað.  Þrátt fyrir að hafa talað fyrir hagræðingu í yfirstjórn sveitarfélagsins og viljað ganga lengst í þeim efnum, var það okkar tillaga að starfsfólk í Neskaupstað fengi aðstöðu í gamla bókasafninu í störfum sínum fyrir sveitarfélagið.  Vinnubrögð meirihlutans og aðdragandi lokunarinnar er með þeim hætti að við getum ekki stutt lokaafgreiðslu málsins og veljum því að sitja hjá. Valdimar O HermannssonJens G HelgasonSævar Guðjónsson  Bókun vegna liðar 12 í fundargerð bæjarráðs 8. desember 2009. Undirritaður leggur áherslu á að sú starfsstöð eða skrifstofa sem nú hefur verið komið upp í Neskaupstað verði nýtt sem best þannig að ferðir starfsmanna þaðan á annan vinnustað verði sem allra fæstar.  Mikilvægt er að með þessu móti verði komið eins mikið til móts við starfsmenn og mögulegt er auk þess sem ýtrustu hagkvæmni verði gætt. Smári Geirsson sign Tillaga um að Fjarðabyggð dragi fulltrúa sinn úr nefnd um sameiningu sveitarfélaga á Austurlandi Undirritaður bæjarfulltrúi leggur til að Fjarðabyggð dragi fulltrúa sinn úr nefnd um sameiningu sveitarfélaga á Austurlandi. Telur undirritaður að ekki sé almennur vilji fyrir hugmyndinni um sameinað Austurland meðal íbúa sveitarfélagsins og að bæjarfulltrúar í Fjarðabyggð ættu að beina kröftum sínum í að efla og styrkja Fjarðabyggð innanfrá og klára að sameina sveitarfélagið í hugum íbúanna áður en lengra er haldið. Sveitarstjórnarmenn á Austurlandi ættu að leggja allar hugmyndir sem þessar til hliðar þangað til íslenska ríkið hefur bætt samgöngur í fjórðungnum verulega með t.d. ?Samgöngum? og nýjum vegi um suðurfirði. Jens Garðar Helgason Tillaga felld með 8 atkvæðum gegn 1 atkvæði Jens Garðars Helgasonar.Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Endurskoðun og undurbúningur fjárhagsáætlunar - Hagræðingarhugmyndir

    Mál 2009-01-23-102 Allur ferill málsins

    Sviðsstjórar komu inn á fundinn og fóru yfir hagræðingarhugmyndir.  Rætt um fyrirkomulag vinnu við fjárhagsáætlun 2010 og úthlutun fjárheimilda.  Seinni umræða um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn er áætluð 22.desember.

  2. 2. Afnot af golfvelli á Eskifirði

    Mál 0911021 Allur ferill málsins

    Bréf formanns Golfklúbbsins Byggðarholts frá 3.nóvember er varðar afnot af golfvellinum á Eskifirði.   Bæjarstýru falið að ræða við golfklúbbinn.

  3. 3. Vegalagning ofan við Eskifjörð

    Mál 0911023 Allur ferill málsins

    Starfandi umhverfisstjóri sat þennan lið fundarins. Framlögð skýrsla Hjalta Sigurðssonar og Sigurðar Péturs Hjaltasonar vegna styrkingar göngu og reiðslóða ofan Steinholtsvegar á Eskifirði. Lögð fram greinargerð skipulagsfulltrúa frá 9.nóvember og farið yfir svör við spurningum sem koma fram í greinargerð Hjalta og Sigurðar. Framkvæmdum þessa árs er lokið. Umhverfisstjóri mun funda með Hjalta á næstunni.

  4. 4. Tillaga um endurgreiðsluhlutfall

    Mál 0910078 Allur ferill málsins

    Bréf Lífeyrissjóðs starfsmanna Neskaupstaðar frá 9.október þar sem lagt er til að endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri verði óbreytt 68%  Bæjarráð samþykkir tillögu um óbreytt endurgreiðsluhlutfall.

  5. 5. Tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins í starfshóp SSA og Sveitarstjórnarráðuneytisins

    Mál 0911042 Allur ferill málsins

    Óskað er eftir að Fjarðabyggð tilnefni einn fulltrúa í starfshóp vegna verkefnisins ""Austurland eitt sveitarfélag""  Tilnefning tekin fyrir á næsta fundi.

  6. 6. Viðtalstími bæjarfulltrúa 29.okt.2009

    Mál 0911008 Allur ferill málsins

    Minnisblað mannvirkjastjóra frá 9.nóvember lagt fram til kynningar.

  7. 7. Byggðakvóti - Stöðvarfirði

    Mál 0911063 Allur ferill málsins

    Rætt um umsókn einstaklings um byggðakvóta fyrir Stöðvarfjörð. Bæjarstýru falin afgreiðsla málsins.

  8. 8. Læknisþjónusta í Fjarðabyggð

    Mál 0903114 Allur ferill málsins

    Rætt um læknisþjónustu í Fjarðabyggð. Forsvarsmenn íbúafundar um málefni heilsugæslunnar verða boðaðir á næsta fund.

  9. 9. Starfsemi Vegagerðarinnar á Austurlandi

    Mál 0911073 Allur ferill málsins

    Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir furðu sinni á samþykkt bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs frá 4. þ.m. þar sem óskað er eftir viðræðum við samgönguyfirvöld um að Fljótsdalshérað taki að sér rekstur Vegagerðar ríkisins á Austurlandi. Vegagerðin hefur haft starfsstöð á Reyðarfirði í fjölda ára og þaðan er sinnt öllum rekstri vegakerfisins frá Ólafsfirði að Skeiðarársandi. Starfsmenn á Reyðarfirði eru um 20 en alls sinna rekstrinum um 60 manns í kjördæminu.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Seint verður næg áhersla lögð á að verkefnum á landsbyggðinni sé stjórnað þaðan í sem ríkustum mæli. Verði verkefnaflutningur í samgöngumálum milli ríkis og sveitarfélaga mun Fjarðabyggð leggja á það alla áherslu að verkefni Vegagerðarinnar á Austurlandi haldi áfram að vera á ábyrgð þeirra sérfræðinga sem staðið hafa vaktina með miklum sóma frá Reyðarfirði undanfarin ár og áratugi.