Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2009

Starfsemi Vegagerðarinnar á Austurlandi

Mál 0911073 Fyrst á dagskrá 12. nóvember 2009, síðast 21. desember 2009. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Samgöngur

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2009

    Bæjarráð, fundur 170 liður 9

    Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir furðu sinni á samþykkt bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs frá 4. þ.m. þar sem óskað er eftir viðræðum við samgönguyfirvöld um að Fljótsdalshérað taki að sér rekstur Vegagerðar ríkisins á Austurlandi. Vegagerðin hefur haft starfsstöð á Reyðarfirði í fjölda ára og þaðan er sinnt öllum rekstri vegakerfisins frá Ólafsfirði að Skeiðarársandi. Starfsmenn á Reyðarfirði eru um 20 en alls sinna rekstrinum um 60 manns í kjördæminu.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Seint verður næg áhersla lögð á að verkefnum á landsbyggðinni sé stjórnað þaðan í sem ríkustum mæli. Verði verkefnaflutningur í samgöngumálum milli ríkis og sveitarfélaga mun Fjarðabyggð leggja á það alla áherslu að verkefni Vegagerðarinnar á Austurlandi haldi áfram að vera á ábyrgð þeirra sérfræðinga sem staðið hafa vaktina með miklum sóma frá Reyðarfirði undanfarin ár og áratugi.

  2. Bæjarstjórn, fundur 64 liður 1.9

    Fundargerðin „Bæjarráð - 170“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is