Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 169

3. nóvember 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Löggæslumál í Fjarðabyggð

    Mál 0909145 Allur ferill málsins

    <DIV><DIV><DIV><DIV>Þennan lið fundarins sátu yfirlögregluþjónninn í Fjarðabyggð Jónas Wilhelmsson og Þórhallur Árnason lögreglumaður. Rætt um löggæslumál í Neskaupstað.</DIV></DIV></DIV></DIV>

  2. 2. Reglur um úthlutun íþróttastyrkja

    Mál 0909070 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir nýjar reglur um úthlutun íþróttastyrkja. Bæjarráð samþykkir reglurnar.

  3. 3. Strandblakvöllur í Neskaupstað

    Mál 0910089 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Rætt um tillögu umhverfisstjóra frá 23.október um að Strandblakvöllur verði staðsettur vestan tjaldsvæðanna á Norðfirði. Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisstjóra og felur mannvirkjastjóra undirbúning málsins.

  4. 4. Sjúkraflug um Norðfjarðarflugvöll

    Mál 0908086 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt bréf forstöðulæknis FSN frá 2.nóvember. Rætt um mönnun vallarins og fyrirkomulag útkalla og bakvakta.  Bæjarstýru falið að koma bréfi forstöðulæknis á framfæri við ráðuneyti samgöngu- og heilbrigðismála.  Mannvirkjastjóra falið að vinna áfram að málinu með Flugstoðum.

  5. 5. Ósk um viðræður um nýjan samstarfssamning vegna reksturs Markaðsstofu Austurlands

    Mál 0910104 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsögn ferða- og menningarfulltrúa frá 2.nóvember. Fulltrúar markaðsstofu boðaðir á næsta fund.

  6. 6. Ósk um leigu á félagsheimilinu Skrúði

    Mál 0908092 Allur ferill málsins

    Bréf Gests Valgeirs og Bjarna Rafns frá 30.10.  Málinu vísað til mannvirkjasviðs til viðræðna á grundvelli erindisins.

  7. 7. Sjónvarpsútsendingar í Fjarðabyggð

    Mál 0910115 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar svör forstöðumanns samskipasviðs Skipta hf. frá 23.október við spurningum forstöðumanns stjórnsýslu vegna sjónvarpsútsendinga í Fjarðabyggð.

  8. 8. Vinnureglur varðandi ferðir og símanotkun starfsmanna

    Mál 0910113 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir reglur um greiðslu ferðakostnaðar og símanotkun starfsmanna.

  9. 9. Læknisþjónusta í Fjarðabyggð

    Mál 0903114 Allur ferill málsins

    Framlögð bréf heilbrigðisráðuneytis frá 28.október og landlæknisembættisins frá 26.október vegna heilbrigðisþjónustu í Fjarðabyggð.  Í bréfi heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið mun láta fara fram hlutlausa úttekt á starfsemi HSA í Fjarðabyggð.

  10. 10. Austfjarðagöng - Lokaskýrsla

    Mál 0911007 Allur ferill málsins

    Skýrsla lögð fram til kynningar.

  11. 11. Samningur-""Nýir íbúar á góðum stað""-framlenging

    Mál 0910142 Allur ferill málsins

    Samningur lagður fram til kynningar.

  12. 12. Viðtalstími bæjarfulltrúa 29.okt.2009

    Mál 0911008 Allur ferill málsins

    Minnisblaði Valdimars O. Hermannssonar frá 29.október vísað til mannvirkja- og umhverfissviðs.

  13. 13. Aðalfundur skólaskrifstofu Austurlands

    Mál 0910014 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands lögð fram til kynningar.

  14. 14. Fundargerð 86. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands

    Mál 0910132 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

  15. 15. Fundargerð félagsmálanefndar nr. 25 frá 26.10.

    Mál 0910138 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram.

  16. 16. Fundargerð mannvirkjanefndar nr. 24 frá 27.10.

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  17. 17. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.36 frá 28.10.

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.