Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 168

27. október 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Aðstöðuleysi 16-25 ára ungmenna í Neskaupstað

    Mál 0903115 Allur ferill málsins

    Hildur Ýr Gísladóttir félagsmálafulltrúi sat þennan lið fundarins. Framlögð greinargerð Hildar frá 15.október um forvarnastarf og afnot af húsnæði að Eyrargötu 9 í Neskaupstað en Sparisjóður Norðfjarðar hefur heimilað endurgjaldslaus afnot af húsinu. Hildur fór yfir forsögu málsins.  Bæjarráð samþykkir tillögu forvarnarhópsins um tilraunaverkefni til sex mánaða.

  2. 2. Strandblakvöllur í Neskaupstað

    Mál 0910089 Allur ferill málsins

    Fulltrúar Blakdeildar Þróttar Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir og Matthías Haraldsson auk umhverfistjóra og skipulagsfulltrúa sátu þennan lið fundarins. Framlögð greinargerð umhverfisstjóra frá 23.október þar sem lagt er til að byggður verði upp strandblakvöllur við tjaldsvæðin austan Tröllagils. Kostnaður bæjarins yrði að hámarki kr. 500.000.  Málið tekið til afgreiðslu á næsta fundi.

  3. 3. Tveggja vikna sumarlokun leikskóla - könnun

    Mál 0910098 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga fræðslustjóra frá 23.október. Bæjarráð samþykkir tillögu um tveggja vikna sumarlokun leikskóla sumarið 2010 og vísar kostnaði kr. 1,6 milljón til fjárhagsáætlunar 2010.

  4. 4. Líkamsrækt og sundafsláttur fyrir framhaldsskólanemendur í Fjarðabyggð.

    Mál 0909040 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og greinargerð menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar frá 22.október um að ungmenni á aldrinum 16-20 ára fái 25% afslátt af seldum kortum í sundlaugar Fjarðabyggðar, í líkamsræktarstöðvar sem Fjarðabyggð rekur og í Skíðamiðstöðina í Oddsskarði. <?xml:namespace prefix = o ns = ""urn:schemas-microsoft-com:office:office"" />

  5. 5. Reglur um úthlutun íþróttastyrkja

    Mál 0909070 Allur ferill málsins

    Framlagðar reglur um úthlutun íþróttastyrkja. Frestað til næsta fundar.

  6. 6. Afsláttur fasteignaskatts af íbúðarhúsnæði elli- og örorkulífeyrisþega

    Mál 0910100 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar minnisblað fjármálastjóra um afslátt af fasteignaskatti af íbúðarhúsnæði elli- og örorkulífeyrisþega ásamt álagningarreglum fyrir 2009.

  7. 7. Beiðni Neytendasamtakanna um styrkveitingu vegna 2010

    Mál 0910103 Allur ferill málsins

    Bréf Neytendasamtakanna frá 13.október. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um styrk.

  8. 8. Ósk um viðræður um nýjan samstarfssamning vegna reksturs Markaðsstofu Austurlands

    Mál 0910104 Allur ferill málsins

    Bréf Markaðsstofu Austurlands frá 16.október. Bæjarráð óskar eftir umsögn frá ferða- og menningarfulltrúa fyrir næsta fund.

  9. 9. Stuðningur við Snorraverkefnið sumarið 2010

    Mál 0910102 Allur ferill málsins

    Bréf verkefnisstjóra Snorraverkefnisins frá 16.október.  Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um styrk.

  10. 10. Áætlun um aukaframlag Jöfnunarsjóðs 2009

    Mál 0910111 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar frétt um áætlun aukaframlags á árinu 2009.

  11. 11. Staða kynja í sveitarstjórnum

    Mál 0910112 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar kynning á greinargerð starfshóps um aðgerðir til að jafna betur stöðu kynja í sveitarstjórnum.

  12. 12. Samningur vegna reiðskemmu

    Mál 0909015 Allur ferill málsins

    Lagður fram viðauki frá 26.október við samning vegna reiðskemmu. Bæjarráð samþykkir viðaukann.

  13. 13. Aðalfundarboð Héraðsnefndar Múlasýslna 2009

    Mál 0910108 Allur ferill málsins

    Tilkynning um aðalfund sem haldinn verður 2.nóvember á Reyðarfirði. Íris Valsdóttir verður fulltrúi á fundinum.

  14. 14. Vinabæjarsamskipti á norðurlöndum

    Mál 0907052 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf borgarstjóra Stavanger frá 15.október.

  15. 15. Reglur um sölu íbúða, breytt leiguverð og uppsögn leigusamninga

    Mál 0909116 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samþykktir félagsmálanefndar frá fundi 26.október vegna reglna um sölu íbúða og breytinga á leiguverði íbúða í eigu Fjarðabyggðar. Bæjarráð leggur áherslu á að uppsagnabréf verði send leigjendum fyrir mánaðarmót með viðeigandi skýringum.

  16. 16. Aðalfundur HAUST 2009

    Mál 0909088 Allur ferill málsins

    Aðalfundi HAUST hefur verið frestað til 11.nóvember.

  17. 17. Golfklúbbur Eskfirðinga

    Mál 2006-12-19-2433 Allur ferill málsins

    Framlagðir minnispunktar bæjarstýru frá fundi hennar 26.október með nýjum formanni Golfklúbbsins Byggðarholts Jóhanni Arnarsyni.

  18. 18. Fundur með fulltrúum í stjórnum stoðstofnana

    Mál 0910127 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað vegna fundar með fulltrúum í stjórnum stoðstofnana sem haldinn var 21.október.

  19. 19. Fundargerð menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar nr.28

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  20. 20. Fundargerð fræðslunefndar nr.22

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.