Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 36

10. október 2023, kl. 14:30 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
  • Jóhanna Guðný Halldórsdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Deiliskipulag breyting Miðbær Nesk v. fótboltavöllur

    Mál 2308005 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar. Breytingin er tilkomin þar sem þörf er á að breikka fótboltavöllinn í samræmi við nýjar reglugerðir um stærð fótboltavalla. Við breikkun vallarins minnkar lóð Þórhólsgötu 1 og Þórhólsgötu 6. Samþykki fékkst frá eigendum að Þórhólsgötu 1 og Þórhólsgötu 6 og grenndarkynning þar með samþykkt. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

  2. 2. Umsókn um lóð Árdalur 15

    Mál 2309257 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir íbúðarhús að Árdal 15, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  3. 3. Umsókn um lóð Hafnargata 27 Fásk

    Mál 2309240 Allur ferill málsins

    Umsókn um iðnaðarlóð fyrir skemmu að Hafnargötu 27, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar þar til lóðarblöð liggja fyrir.

  4. 4. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bakkagerði 20

    Mál 2310030 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bakkagerði 20, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning með breyttum lóðarmörkum.

  5. 5. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 25

    Mál 2310028 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 25, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar þar til lóðarblöð liggja fyrir.

  6. 6. Strandblakvöllur í Neskaupstað ný staðsetning

    Mál 2308071 Allur ferill málsins

    Strandblakvöllur í Neskaupstað ný staðsetning. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til aðra tillögu að staðsetningu fyrir strandblaksvöll fyrir ofan Starmýri og felur atvinnu- og þróunarstjóra að bera nýja tillögu undir stjórn Þróttar.

  7. 7. Hoppubelgur Neskaupstað ný staðsetning

    Mál 2308072 Allur ferill málsins

    Lögð til samþykktar ný staðsetning fyrir hoppubelg í Neskaupstað vegna framkvæmda ofanflóðavarna. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skoða staðsetningu milli sundlaugar og lystigarðs nánar og felur atvinnu- og þróunarstjóra að ræða við hlutaðeigandiaðila.

  8. 8. Drög að hvítbók um skipulagsmál og umhverfismatsskýrsla

    Mál 2309196 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar umhverfis- og skipulagsnefndar tillögu innviðaráðherra að þingsályktun um landsskipulagsstefnu til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára. Drög hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 31.10.2023. Bæjarráð vísar drögum til umfjöllunar umhverfis- og skipulagsnefndar og umsagnar skipulags- og umhverfisfulltrúa. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera umsögn í samræmi við umræður á fundinum.

  9. 9. Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti

    Mál 2309231 Allur ferill málsins

    Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að huga að staðsetningum innviða fyrir orkuskipti.

  10. 10. Ósk um undanþágu urðunargjalda og aðgangs að raftækjagámum

    Mál 2310004 Allur ferill málsins

    Ósk um undanþágu urðunargjalda og aðgangs að raftækjagámum. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindið og felur verkefnastjóra umhverfismála að útfæra afslátt af urðunargjaldi samkvæmt umræðum á fundinum. Sveitarfélagið mun leggja sig fram við að beina fólki í nytjagáminn en getur ekki veitt aðgang að raftækjum sem eigandi hefur kosið að setja í eyðingu.

  11. 11. Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024

    Mál 2305072 Allur ferill málsins

    Farið yfir fjárhagsáætlun málaflokka nefndarinnar fyrir árið 2024. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu til aukafundar.

  12. 12. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2024

    Mál 2309164 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2024. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir uppfærða gjaldskrá með 5,8% hækkun og vísar erindinu í bæjarráð.

  13. 13. Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024

    Mál 2309156 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir gjaldskrána með fyrirvara um breytingar er varða niðurfellingu gjalda vegna þjónustuhunda. Nefndin felur verkefnastjóra umhverfismála að bæta inn sambærilegum texta og er í drögum um samþykkt í gjaldskrá vegna þjónustuhunda. Erindinu er vísað til bæjarráðs.

  14. 14. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs

    Mál 2309162 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs. Málinu er frestað þar til aukafundar.

  15. 15. Tjaldsvæði 2023

    Mál 2203199 Allur ferill málsins

    Lagt fram til samþykktar afmörkuð landssvæði fyrir tjaldsvæði til söluferlis í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir staðsetningar á framlögðu minnisblaði og vísar málinu til umfjöllunar í mannvirkja- og veitunefnd.