NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 35
26. september 2023, kl. 14:30 til 16:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
- Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 816 liður 17
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 26. september lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 360 liður 9
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Heimir Snær Gylfason, Kristinn Þór Jónasson, Jón Björn Hákonarson,
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 26. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Deiliskipulag Nes- og Bakkagil
Mál 2303368 Allur ferill málsins
Umsögnum á kynningartíma svarað vegna Deiliskipulags Nes- og bakkagils og skipulagið lagt fram til endanlegrar samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagið og vísa því til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
2. Deiliskipulag Drangagil - endurskoðun
Mál 2307048 Allur ferill málsins
Tekið fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á deiliskipulagi fyrir svæði 1 fyrir snjóflóðavarnir í Neskaupstað, Drangagilssvæði. Breytingin gengur breytt skipulagsmörk til samræmis við nýtt aðliggjandi deiliskipulag. Grenndarkynning var auglýst með athugasemdafresti til 30. ágúst 2023. Fyrir liggja umsagnir frá Minjastofnun Íslands og Veðurstofu Íslands sem gerðu ekki athugasemdir við breytingartillöguna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-
3. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024
Mál 2308105 Allur ferill málsins
Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024. Atvinnu- og þróunnarstjóri óskar eftir hugmyndum nefndarmanna um áfangastaði ferðamanna. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna.
-
4. Nesk Rútustæði Sólbakka
Mál 2309134 Allur ferill málsins
Beiðni um færslu á rútustæði við Sólbakka, Neskaupstað vegna framkvæmda. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tilfærslu á bílastæði fyrir stærri ökutæki frá Sólbakka að Eyrargötu. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að upplýsa hlutaðeigandi aðila um nýja staðsetningu.
-
5. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs
Mál 2309162 Allur ferill málsins
Gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs 2024 lögð fram til umfjöllunar. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar til áframhaldandi umræðu og felur verkefnastjóra umhverfismála að uppfæra gjaldskrá í samræmi við umræður á fundinum.
-
6. Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024
Mál 2309156 Allur ferill málsins
Gjaldskrá hunda- og kattahalds 2024 lögð fram til umfjöllunar. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar til áframhaldandi umræðu og felur verkefnastjóra umhverfismála að uppfæra gjaldskrá í samræmi við umræður á fundinum.
-
7. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2024
-
8. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2309120 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20ft gám við N1 Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar umsókn um 20ft gám við N1. Í 7.gr deiliskipulagi miðbæjar, Reyðarfjarðar segir "óheimilt er að geyma gáma, báta, óskráð ökutæki, eða annað rusl á lóðum. Byggingarfulltrúi getur látið fjarlægja slíkt með eins mánaðar fyrirvara og án frekari tilkynninga".
-
9. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Gilsbakki 1
Mál 2309104 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Gilsbakka 1. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út nýjan lóðarleigusamning í samræmi við nýtt lóðarblað.
Heimir Snær Gylfasson vék af fundi undir þessum lið.
-
10. Erindi vegna gámasvæðis á Reyðarfirði
Mál 2309019 Allur ferill málsins
Erindi vegna gámasvæðis á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar erindin og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að svara þeim spurningum sem fram komu í erindinu.
Heimir Snær Gylfasson og Ingunn Eir Andrésardóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma að nefndin geti ekki staðið við upphaflega áætlun um gámasvæði á Reyðarfiðri við Hjallaleiru 10.
-
11. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023
Mál 2301174 Allur ferill málsins
174. fundargerð heilbrigðisnefndar Austurlands. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakka kynninguna.
-
12. Umsókn um lóð Árdalur 13
Mál 2309210 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð fyrir íbúðarhús að Árdal 13, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
-
13. Tilkynning um kæru 111/2023, stjórnvald
Mál 2309214 Allur ferill málsins
Tilkynning um kæru 111/2023, stjórnvald. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að svara erindinu í samráði við lögmann sveitarfélagssins.
-
14. Til umsagnar 3. mál frá nefnda- og greiningarsviði alþingis
Mál 2309215 Allur ferill málsins
Til umsagnar 3. mál frá nefnda- og greiningarsviði alþingis. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur ekki þörf á að veita umsögn um málið.
-
15. Tjaldsvæði 2023
Mál 2203199 Allur ferill málsins
Tillögur vegna staðsetninga lagt fram vegna sölu tjaldsvæða í Fjarðabyggð til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa og atvinnu- og þróunarstjóra að uppfæra minnisblað í samræmi við umræður á fundinum.
-
16. Búðarmelur 7a-c - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2309222 Allur ferill málsins
Búðarmelur 7a-c - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.