Fræðslunefnd, fundur 131
10. október 2023, kl. 16:30 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Anna Marín Þórarinsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
- Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
- Sigurjón Rúnarsson, aðalmaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, varamaður
Starfsmenn
- Lísa Lotta Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Anna Marín Þórarinsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 818 liður 24
Fundargerð fræðslunefndar frá 10. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 361 liður 9
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 10. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Gjaldskrá leikskóla 2024
Mál 2309160 Allur ferill málsins
Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að vinna úr útfærsluatriðum á gjaldskrá og leggja fram tillögu fyrir næsta fund
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024
Mál 2305048 Allur ferill málsins
Til umfjöllunar er starfs- og fjárhagsáætlun 2024 í fræðslumálum. Formaður fræðslunefndar greindi frá fundi með bæjarráði þar sem farið var yfir vinnu starfsmanna fræðslusviðs við fjárhagsáætlun. Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að taka saman helstu áherslur í minnisblaði sem munu fylgja starfs- og fjárhagsáætlun.
-
3. Gjaldskrá frístundaheimila
Mál 2309153 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá frístundaheimila fyrir árið 2024. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
-
4. Gjaldskrá tónlistarskóla 2024
Mál 2309166 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá tónlistarskóla fyrir árið 2024. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
-
5. Gjaldskrá húsnæðis grunnskóla
Mál 2309157 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá húsnæðis grunnskóla fyrir árið 2024. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
-
6. Starfshópur fræðslumála 2023
Mál 2309181 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað þar sem farið er yfir hugmyndir um stofnun starfshóps til að skoða rekstur og skipulag innan leik-, grunn- og tónlistarskólanna. Fræðslunefnd samþykkir stofnun starfshóps og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs og stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að vinna málið áfram.
-
7. Verðfyrirspurn vegna íþróttaakstur Eskifjarðarskóla í Íþróttamistöð Reyðarfjarðar
Mál 2306090 Allur ferill málsins
Fyrirliggur tillaga stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu um akstur nemenda Eskifjarðarskóla í íþróttir á Reyðarfirði haustið 2024.