Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 132

31. október 2023, kl. 17:00 til 19:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Anna Marín Þórarinsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
  • Sigurjón Rúnarsson, aðalmaður
  • Birta Sæmundsdóttir, varamaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir

Starfsmenn

  • Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Ásta K. Guðmundsd. Michelsen, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Anna Marín Þórarinsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 821 liður 13

    Fundargerð fræðslunefndar frá 31. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 363 liður 3

    Fundargerðir fræðslunefndar nr. 132 og 133 lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 132 frá 31. október er staðfest með 9 greiddum atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024

    Mál 2305048 Allur ferill málsins

    Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 var kynnt fyrir fræðslunefnd.

  2. 2. Gjaldskrá leikskóla 2024

    Mál 2309160 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá leikskóla fyrir árið 2024.Í tillögunni er gert ráð fyrir 7,7% hækkun á dvalargjöldum og 4,9% hækkun á fæðisgjaldi frá árinu 2023. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.

  3. 3. Starfshópur fræðslumála 2023

    Mál 2309181 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu kynnti erindisbréf um skipan starfshóps fræðslumála sem hefur það verkefni að móta stefnu og aðgerðaráætlun um breytingu á núverandi rekstrar- og stjórnunarfyrirkomulagi leik-, grunn- og tónlistarskóla Fjarðabyggðar, með það fyrir augum að bæta faglegt starf og auka rekstrarlega samlegð.

    Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf og vísar til bæjarráðs.

  4. 4. Íslenska æskulýðsrannsóknin 2023

    Mál 2310143 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu lagði fram til kynningar niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.

  5. 5. Samskiptastefna 2022-2026

    Mál 2210143 Allur ferill málsins

    Drög að samskipta- og vefstefnu Fjarðabyggðar ásamt stefnu um innri samskipti voru tekin fyrir á fundi fræðslunefndar eftir að óskað var eftir umsögn frá leik-, grunn- og tónlistarskólum.

    Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu var falið að koma athugasemdum á framfæri.

    Fræðslunefnd samþykkir stefnuna að öðru leiti.

  6. 6. Frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, 238. mál.

    Mál 2310057 Allur ferill málsins

    Frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu nr. 238 var kynnt. Fræðslunefnd fagnar frumvarpinu og ítrekar mikilvægi þess að stofnunin þjóni öllu landinu.