Bæjarráð, fundur 821
6. nóvember 2023, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 363 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 821 og 822 lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson og Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð bæjarráðs nr. 821 frá 6. nóvember er staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Mál 2305061 Allur ferill málsins
Umræða um fjárhagsáætlun 2024 í kjölfar fyrri umræðu í bæjarstjórn 2.11.2023.
Bæjarráð samþykkir að síðari umræða um fjárhagsáætlun 2024 og áætlun 2025 til 2027 verði 30. nóvember nk.
-
2. Útsvar 2024
Mál 2311037 Allur ferill málsins
Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars árið 2024 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,74 % af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Bæjarráð samþykkir að álagningarhlutfall útsvars árið 2024 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,74 % af útsvarsstofni í Fjarðabyggð og vísar til bæjarstjórnar staðfestingu hlutfalls.
-
3. Starfshópur fræðslumála 2023
Mál 2309181 Allur ferill málsins
Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að erindisbréfi starfshóps um fræðslumál.
Bæjarráð staðfestir erindisbréfið og felur bæjarstjóra að undirrita.
-
4. Yfirlýsing vegna kaupréttar
Mál 2209031 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um kaupskyldu að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.
Fram lagt og kynnt.
-
5. Barnvænt sveitarfélag yfirlýsing
Mál 2311011 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar yfirlýsing sveitarfélaga sem eru þátttakendur í verkefninu barnvæn sveitarfélög.
-
6. Beiðni um afnot af nýja íþróttahúsi 2024
Mál 2311024 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Þorrablótsnefndar Reyðarfjarðar um afnot af Íþróttahúsinu á Reyðarfirði fyrir þorrablót 2024.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk gegn afnotum af íþróttahúsinu fyrir Þorrablót Reyðfirðinga.
-
7. Gjaldskrá leikskóla 2024
Mál 2309160 Allur ferill málsins
Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir leikskólagjöld á árinu 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2024.
-
8. Gjaldskrá frístundaheimila
Mál 2309153 Allur ferill málsins
Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir frístundaheimili í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2024.
-
9. Gjaldskrá tónlistarskóla 2024
Mál 2309166 Allur ferill málsins
Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá tónlistarskóla árið 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2024.
-
10. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2024
Mál 2309164 Allur ferill málsins
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá skipulags- og byggingarmála árið 2024. Allir gjaldliðir gjaldskrárinnar hafa verið hækkaðir um 5,8%.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2024.
-
11. Gjaldskrá hitaveitu 2024
Mál 2309155 Allur ferill málsins
Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá hitaveitu árið 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2024.
-
12. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Mál 2301183 Allur ferill málsins
Fundargerð 936. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
-
13. Fræðslunefnd - 132
Fundargerð fræðslunefndar frá 31. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 13.1 Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 20242305048
- 13.2 Gjaldskrá leikskóla 20242309160
- 13.3 Starfshópur fræðslumála 20232309181
- 13.4 Íslenska æskulýðsrannsóknin 20232310143
- 13.5 Samskiptastefna 2022-20262210143
- 13.6 Frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, 238. mál.2310057
-
14. Stjórnkerfisnefnd 2020-2023
Mál 2011203 Allur ferill málsins
Bæjarráð sem stjórnkerfisnefnd fjallar um breytingar á stjórnkerfi Fjarðabyggðar.