Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 130

26. september 2023, kl. 16:30 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Anna Marín Þórarinsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
  • Sigurjón Rúnarsson, aðalmaður
  • Malgorzata Beata Libera, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Anna Marín Þórarinsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 816 liður 14

    Fundargerð fræðslunefndar frá 26. september lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 360 liður 6

    Til máls tóku: Birgir Jónsson, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 26. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024

    Mál 2305048 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu gerði grein fyrir niðurstöðu vinnu við gerð launaáætlunar fyrir árið 2024 í fræðslumálum. Fræðslunefnd felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.

  2. 2. Gjaldskrá frístundaheimila

    Mál 2309153 Allur ferill málsins

    Til umræðu var gjaldskrá frístundarheimila.

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur til að gjaldskrá frístundaheimila verði endurskoðuð með það fyrir augum að samræma gjaldskrá vegna vistunar umfram 6 klukkustundir í leik- og grunnskólum. Sérstaklega verði horft til þess að sveitarfélagið bjóði upp á fræðslustarf sem sé foreldrum að kostnaðarlausu en þjónusta umfram það sé gjaldskyld s.s. vistun og fæði. Gjaldskylda þarf því að taka mið af hefðbundnu skólastarfi og fara svo stigvaxandi eftir því sem dvalartíminn er lengri.

    Með þessu yrði horft til þess að auka sveigjanleika í dagvistun, draga úr álagi, auðvelda mönnun og styrkja faglegt starf.

    Frekari umræðu frestað til næsta fundar.

  3. 3. Gjaldskrá húsnæðis grunnskóla

    Mál 2309157 Allur ferill málsins

    Til umræðu var gjaldskrá húsnæðis grunnskólanna. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.

  4. 4. Gjaldskrá leikskóla 2024

    Mál 2309160 Allur ferill málsins

    Til umræðu var gjaldskrá leikskólanna.

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur til að gjaldskrá leikskóla verði endurskoðuð með það fyrir augum að samræma gjaldskrá vegna vistunar umfram 6 klukkustundir í leik- og grunnskólum. Sérstaklega verði horft til þess að sveitarfélagið bjóði upp á fræðslustarf sem sé foreldrum að kostnaðarlausu en þjónusta umfram það sé gjaldskyld s.s. vistun og fæði. Gjaldskylda þarf því að taka mið af hefðbundnu skólastarfi og fara svo stigvaxandi eftir því sem dvalartíminn er lengri.

    Með þessu yrði horft til þess að auka sveigjanleika í dagvistun, draga úr álagi leikskóla, auðvelda mönnun og styrkja faglegt starf.

    Fulltrúar Framsóknar og Fjarðalista leggja til að stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu taki saman upplýsingar um þær leiðir sem hafa verið farnar í öðrum sveitarfélögum að undanförnu með það að markmiði að gjaldskrár Fjarðabyggðar endurspegli áherslur varðandi það að draga úr álagi á börn og starfsfólk leikskóla en um leið þarf að huga að því hvernig við mætum þörfum ólíkra hópa í samfélaginu og þeirri samfélagsgerð sem er hér.

    Frekari umræðu frestað til næsta fundar.

  5. 5. Gjaldskrá tónlistarskóla 2024

    Mál 2309166 Allur ferill málsins

    Til umræðu var gjaldskrá tónlistarskóla. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.