Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 817

9. október 2023, kl. 08:30 til 12:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varamaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 361 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 9. október staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2303071 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur og fjárfestingar janúar - ágúst 2023 og yfirlit yfir skatttekjur og launakostnað janúar - september 2023. Einnig lagt fram yfirlit fjármálastjóra um þróun staðgreiðslu.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024

    Mál 2305061 Allur ferill málsins

    Farið yfir vinnuna við fjárhagsáætlun ársins 2024 og niðurstöður í launaáætlun.

    Bæjarráð ítrekar að nefndir fari yfir launaáætlanir og nái þeim undir ramma sem úthlutað var í rammaúthlutun. Nefndir leggi fram forgangsröðun verkefna til að ná ramma launaáætlunar.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024

    Mál 2305047 Allur ferill málsins

    Lögð fram samantekt fjármálastjóra og deildarstjóra íþróttamannvirkja um rekstur Sundlaugarinnar á Breiðdalsvík.

    Fram lagt og kynnt.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2024

    Mál 2305069 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn um kostnað við upplýsingatækni.

    Tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  5. 5. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2024

    Mál 2310039 Allur ferill málsins

    Endurskoðun húsnæðisáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2024 rædd.

    Vísað til fjármálastjóra.

  6. 6. Framkvæmdasvið verkefni 2023

    Mál 2303230 Allur ferill málsins

    Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd til afgreiðslu bæjarráðs fjármögnun framkvæmda við Tröllaveg. Sviðsstjóri fór yfir áætlunina sem er tilkomin vegna ófyrirséðra skemmda við götuna.

    Bæjarráð felur sviðsstjóra að fara yfir bráðaaðgerðir og leggja að nýju fyrir mannvirkja- og veitunefnd.

  7. 7. Yfirlýsing vegna kaupréttar

    Mál 2209031 Allur ferill málsins

    Forkaupsréttur að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði ræddur.

  8. 8. Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023

    Mál 2303238 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir stöðu mála í vinnu Deloitte við stöðugreiningu stjórnsýslu Fjarðabyggðar.

  9. 9. Egilsbraut 4 - Nytjamarkaður ósk um aukið rými

    Mál 2310038 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Sigurðar Jenssonar f.h. nytjamarkaðarins Steinsins í Neskaupstað varðandi húsnæðismála markaðarins.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram. Vísað til umfjöllunar umhverfis- og skipulagsnefndar.

  10. 10. Umsókn um stofnframlög á árinu 2023

    Mál 2302095 Allur ferill málsins

    Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur opnað fyrir umsóknir um stofnframlög. Lögð fram samantekt fjármálastjóra um húsnæðismarkaðinn og mögulega umsókn um stofnframlög.

    Bæjarráð samþykkir að sótt verði um stofnframlög samanber framlagða tillögu. Fjármálastjóra falið að sækja um framlögin.

  11. 11. Römpum upp Ísland

    Mál 2203163 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Römpum upp Ísland vegna samvinnu við gerð rampa við húsnæði í eigu sveitarfélaga.

    Vísað til mannvirkja- og veitunefndar.

  12. 12. Forvarna- og öryggisnefnd fundargerðir

    Mál 2110173 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð 14. fundar forvarna- og öryggisnefndar Fjarðabyggðar frá 3. október 2023. Lagt fram til kynningar.

  13. 13. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023

    Mál 2301183 Allur ferill málsins

    Fundargerð 934. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  14. 14. Alþjóðlegur minningardagur fórnarlamba umferðarslysa 2023

    Mál 2310014 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf innviðaráðuneytis um minningardag um fórnarlömb umferðarslysa sem er haldinn 19. nóvember 2023.

    Bæjarráð felur slökkviliðsstjóra að halda utanum skipulag dagsins.

  15. 15. Umsögn vegna uppbyggingar og umgjörð lagareldis stefna til ársins 2040

    Mál 2310027 Allur ferill málsins

    Framlögð stefna Matvælaráðuneytis vegna lagareldis til ársins 2040. Leggja þarf fram umsögn vegna málsins fyrir 4. nóvember 2023.

    Bæjarstjóra falið að veita umsögn vegna málsins og leggja fyrir bæjarráð.

  16. 16. Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva

    Mál 2310034 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Instavolt varðandi uppsetningu hraðhleðslustöðva í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð vísar erindi til umhverfis- og skipulagsnefndar til umsagnar vegna skipulagsmála.