Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2024

Sumarlokun leikskóla 2024

Mál 2311038 Fyrst á dagskrá 7. nóvember 2023, síðast 11. janúar 2024. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2023

    Fræðslunefnd, fundur 133 liður 2

    Fyrir liggur minnisblað um sumarlokun leikskóla 2024. Í minnisblaðinu eru lagðar fram tvær tillögur. Fræðslunefnd samþykkir fyrri tillöguna sem gerir ráð fyrir fjögurra vikna sumarlokun eða 20 virkum dögum og er það í samræmi við starfsáætlun í fræðslumálum og niðurstöðu starfshóps um sumaropnun leikskóla. Þá kemur fram að sumarlokun leikskólanna verði stillt af þannig að sumarlokun leikskólanna fimm spanni u.þ.b. tvo mánuði sumarsins. Lagt er til að sumarlokun leikskólanna sumarið 2024 verði þessi:

    Lesa alla bókunina (73 orð til viðbótar)

    Eyrarvellir Norðfirði 24.06-19.07 báðir dagar meðtaldir

    Dalborg Eskifirði 08.07-06.08 báðir dagar meðtaldir

    Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 08.07-06.08 báðir dagar meðtaldir

    Kæribær Fáskrúðsfirði 17.07-14.08 báðir dagar meðtaldir

    Lyngholt Reyðarfirði 17.07-14.08 báðir dagar meðtaldir

    Þá er athygli vakin á reglum um leikskóla í Fjarðabyggð, en samkvæmt þeim geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis.

  2. Bæjarráð, fundur 822 liður 18.2

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 133“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 363 liður 4.2

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 133“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Fræðslunefnd, fundur 134 liður 3

    Fyrir liggja óskir um breytingu á sumarlokun leikskólanna frá Kærabæ og Dalborg. Fræðslunefnd tók málið fyrir og samþykkir breytinguna. Sumarlokun leikskólanna verður því þessi:

    Eyrarvellir Norðfirði 24.06-19.07 báðir dagar meðtaldir

    Dalborg Eskifirði 10.07-07.08 báðir dagar meðtaldir

    Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 08.07-06.08 báðir dagar meðtaldir

    Kæribær Fáskrúðsfirði 15.07-09.08 báðir dagar meðtaldir

    Lyngholt Reyðarfirði 17.07-14.08 báðir dagar meðtaldir

    Þá er athygli vakin á reglum um leikskóla í Fjarðabyggð, en samkvæmt þeim geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis.

  5. Bæjarráð, fundur 827 liður 16.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 134“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  6. 2024

    Bæjarstjórn, fundur 367 liður 3.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 134“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is