Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 823

20. nóvember 2023, kl. 08:30 til 11:50, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 364 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 823. og 824. lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson og Jóna Árný Þórðardóttir

    Fundargerð 823. fundar bæjarráðs frá 20. nóvember er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Veikindalaun 2023

    Mál 2311106 Allur ferill málsins

    Framlögð greinargerð ásamt tillögu um fjármögnun veikindalauna á fyrstu 10 mánuðum ársins 2023.

    Bæjarráð vísar tillögu um ráðstöfun á fjármagni til veikindalaun til gerðar viðauka.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 4

    Mál 2311104 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar á árinu 2023.

    Bæjarráð samþykkir viðauka fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024

    Mál 2305047 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  4. 4. Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2024

    Mál 2309168 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um breytingu á gjaldskrá stuðningsþjónustu með þeim breytingum sem samþykktar voru í starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og tekur hún gildi frá 1. janúar 2024.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2024

    Mál 2305070 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar með tillögu að breytingum á tekjuhlið barnaverndarþjónustu.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.

  6. 6. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024

    Mál 2305061 Allur ferill málsins

    Farið yfir breytingar á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árin 2024-2027 fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn 30.11.2023.

    Fram lagt og kynnt.

  7. 7. Umsókn um stofnframlög á árinu 2023

    Mál 2302095 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til afgreiðslu tvær umsóknir um stofnframlög til tveggja íbúðaverkefna á Reyðarfirði og Neskaupstað í samstarfi við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sbr. samþykkt bæjarráðs frá 9. október 2023. Stofnunin óskar eftir staðfestingu Fjarðabyggðar um úthlutun á stofnframlagi til verkefnanna.

    Bæjarráð staðfestir framlög Fjarðabyggðar til verkefna og felur bæjarstjóra undirritun staðfestinga.

  8. 8. Vinnustaðagreining 2023

    Mál 2309191 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar niðurstöður vinnustaðagreiningar fyrir stofnanir Fjarðabyggðar ásamt minnisblaði.

  9. 9. Efling dreifbýlis

    Mál 2311127 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar samantekt frá íbúafundi Austurbrúar vegna verkefnsins Vatnaskil sem er verkefni um nýsköpun og fjölbreyttara atvinnulíf í dreifbýli á Austurlandi með sérstaka áherslu á ungt fólk. Að baki verkefninu standa Samband sveitarfélaga á Austurlandi, Búnaðarsamband Austurlands og Félag ungra bænda á Austurlandi.

  10. 10. Til umsagnar 497. frumvarp til laga um breytingu á kosningalögummál (kosningaaldur)

    Mál 2305168 Allur ferill málsins

    Vísað frá ungmennaráði til kynningar í bæjarráði niðurstöðu þess um breytingu á kosningalögum. Ungmennaráð telur að ef það eigi að lækka kosningaaldurinn sé mikilvægt að kynna fyrir öllum 16-18 ára hvað felst í því að kjósa og hvað þarf að hafa í huga. Þó velta þau fyrir sér hvort fólk á þessum aldri séu komin með þroska til að taka þátt í kosningum.

  11. 11. Til umsagnar 468. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

    Mál 2311138 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar Þingskjal 509, 468. mál. stjórnarfrumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (gistináttaskattur, áfengisgjald o.fl.).

  12. 12. Til umsagnar 478. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

    Mál 2311132 Allur ferill málsins

    Framlagt til umsagnar frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 478. mál.

    Framlagt til kynningar.

  13. 13. Félagsmálanefnd - 172

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 14. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 13.1 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 20242309168
    2. 13.3 Skýrsla stjórnenda - félagsmálanefnd2311096
    3. 13.4 Barnvænt sveitarfélag yfirlýsing2311011
  14. 14. Félagsmálanefnd - 173

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 17. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 14.1 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20242305070
  15. 15. Íþrótta- og tómstundanefnd - 127

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 13. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 15.1 Barnvænt sveitarfélag yfirlýsing
    2. 15.2 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024
    3. 15.3 Ungmennaráð - 8
  16. 15. Ungmennaráð - 8

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð ungmennaráðs frá 1. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 15.1 Erindisbréf ungmennaráðs2301116
    2. 15.2 Fundaáætlun ungmennaráðs haust 20232309190
    3. 15.3 Snjalltækjavæðing og reglur um snjalltæki í grunnskólum Fjarðabyggðar1806053
    4. 15.4 Athugasemd v. gangbrautar í Neskaupstað2310191
    5. 15.5 Skólamatur í Fjarðabyggð - athugasemdir ungmennaráðs2310194