Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 4
Mál 2311104 Fyrst á dagskrá 20. nóvember 2023, síðast 30. nóvember 2023. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 30. nóvember 2023, frá 2:04:36
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2023
Bæjarráð, fundur 823 liður 2
Framlögð tillaga að viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar á árinu 2023.
Bæjarráð samþykkir viðauka fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 364 liður 10
Bæjarstjóri mælti fyrir viðauka 4 við fjárhagsáætlun 2023.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar viðauka 4 við fjárhagsáætlun 2023.
Framlagður viðauki 4 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2023 vegna framkvæmda í fráveitu, lækkun fjárfestinga hafnarsjóðs, auknum framlögum til málaflokks fatlaðs fólks, tilfærslu á stofnframlögum til íbúðabygginga, úthlutun á fjármunum til símenntunar og veikindalauna auk fjármögnunar kostnaðar nýrra kjarasamninga.
Lesa alla bókunina (216 orð til viðbótar)
Hækkun á fjárfestingu Fráveitu vegna Tröllavegs nemur 54,7 m.kr.
Lækkun á fjárfestingu Fjarðabyggðahafna vegna Eskifjarðarhafnar nemur 54,7 m.kr.
Hækkun á framlögum Jöfnunarsjóðs í skatttekjum nemur 99,7 m.kr. vegna aukins framlags til málefna fatlaðs fólks.
Lækkun á framlögðum Jöfnunarsjóðs til málefna fatlaðra í félagsþjónustu nemur 22,6 m.kr.
Tilfærsla á stofnframlögum til byggingu íbúða fyrir tekjulága nemur 34 m.kr. frá fjárfestingarlið Félagslegra íbúða til stofnframlaga í efnahagsreikningi aðalsjóðs.
Tilfærsla á fjármagni til símenntunar nemur 11,6 m.kr. frá málaflokknum sameiginlegur kostnaður til stofnana í a hluta.
Hækkun á launakostnaði samstæðu vegna breytinga á kjarasamningum nemur 39,6 m.kr. sem skiptist milli deilda og sviða innan a- og b-hluta fjárhagsáætlunar.
Hækkun á kostnaði vegna veikinda nemur 8,1 m.kr.
Tilfærsla á fjármagni til að mæta veikindum starfsmanna stofnana fyrstu 10 mánuði ársins nemur 48,1 m.kr. frá málaflokknum sameiginlegum kostnaði til stofnana í a og b hluta en 40 m.kr. voru áætlaðar til að mæta útgjöldum.
Viðauki 4 hefur þau áhrif á fjárhag Fjarðabyggðar að sjóðsstaða samstæðunnar batnar um 29,5 m.kr. og er gert ráð fyrir að handbært fé verði 424 m.kr. í árslok 2023. Eigið fé Aðalsjóðs og samstæðu Fjarðabyggðar ásamt viðskiptareikningum a- og b hluta stofnana og aðalsjóðs tekur breytingum sem af viðaukanum leiðir.
Engin tók til máls.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir með 9 greiddum atkvæðum viðauka 4 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023
Upptaka bæjarstjórnarfundar 364. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 2:04:36 forseti bæjarfulltrúar bæjarráð afgreiddi á fundi sínum
- 2:05:04 ráðgreiði á fundi sínum á mánudaginn var viðauka fjögur vegna fjársáttunar tuttugu og þrjú sem felur í sér nokkrar breytingar þessi viðauki tekur til breytingar sem snerta meðal annars fjárfestingar í hafnasjóði og fráviti fjarðabyggðar breytingum á framlögum í málefnum fatlaðs fólks tilfærslur á stofnframlögum vegna húsnæðisfélaga
- 2:05:32 húsnæðisfélaga árlegt verkefni sem felst í útdeilingu fjármuna úr símenntunarbotti sveitarfélagsins þá voru nokkrir kjarasamningar sem að niðurstaða kom í þarna í haust sem að hérna þurfti að taka tillit til og síðan í rauninni breytingar á launaáætluninni
- 2:06:00 launaáætlunum inn til deilda tengt veikindalaunum fyrstu tíma með ársins og var komið aðeins inn á hérna áðan undir fundagerð bæjaráðs sama dregið hafa ofgreindir liðir áhrif á fjárðarbyggð þannig að sjóðstæða samstæðunnar batnar um tuttugu og níu koma fimm milljónir og er því gert ráð fyrir að handbært féhækki sem þín nemur
- 2:06:28 hækki sem þín nemur miðað við þá áætlun sem lá fyrir nánari sundurliðun á einstökum liðum liggja fyrir í gögnum fundarins
-
Bæjarstjórn, fundur 364 liður 2.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 823“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.