Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 812

11. september 2023, kl. 08:30 til 10:40, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 359 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 812 og 813 lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Benedikt Jónsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 812 og 813 eru staðfestar með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2024

    Mál 2305069 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2024 í A hluta.

    Bæjarráð felur sviðsstjórum að vinna fjárhagsáætlun fyrir málaflokka og leggja fyrir að nýju.

  2. 2. Erindi vegna gámasvæðis á Reyðarfirði

    Mál 2309019 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi eiganda gáma á gámasvæðinu á Reyðarfirði vegna afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar á gámasvæði á Reyðarfirði.

    Bæjarráð vísar erindi til umhverfis- og skipulagsnefndar.

  3. 3. Umsókn um stofnframlög á árinu 2023

    Mál 2302095 Allur ferill málsins

    Rætt um framhald uppbyggingar almennra leiguíbúða fyrir tekju- og eignalága í Fjarðabyggð en opnað verður fyrir umsóknir um stofnframlög á næstunni.

  4. 4. Grænn orkugarður á Reyðarfirði

    Mál 2108124 Allur ferill málsins

    Umræða um stöðu mála vegna uppbyggingu græns orkugarðs á Reyðarfirði.

  5. 5. Samgöngur í Fjarðabyggð

    Mál 2309075 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga Sjálfstæðisflokksins varðandi breyttar áherslur og forgangsröðun í samgöngumálum í Fjarðabyggð.

    Tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  6. 6. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð 2024 - 2027

    Mál 2309074 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu- og upplýsingamála varðandi almenningssamgöngur í Fjarðabyggð 2024.

    Bæjarráð samþykkir að hafinn verði undirbúningur að útboði almenningssamgangna á grundvelli tillögu minnisblaðsins.

  7. 7. Boð Matvælaráðuneytisins til samráðs vegna stefnumótunar lagareldis

    Mál 2304174 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að umsögn Fjarðabyggðar vegna samráðs um stefnumörkun í lagareldi.

    Bæjarráð samþykkir umsögnina.

  8. 8. Hvatning til sveitastjórna um mótun málstefnu

    Mál 2309049 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar erindi innviðaráðuneytins þar sem skorað er á sveitastjórnir að hefja vinnu við mótun málstefnu.

  9. 9. Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2023

    Mál 2309021 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð á Ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem fram fer miðvikudaginn 20. september 2023 á Hilton Nordica Reykjavík.

    Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  10. 10. Aukaðalfundur Samtaka orkusveitarfélga 2023

    Mál 2309050 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð á aukaaðlfund Samtaka Orkusveitarfélaga sem fram fer þriðjudaginn 19. september kl. 13:00 í fjarfundi.

    Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttar bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  11. 11. Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 2022

    Mál 2309063 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf., haldinn samhliða fundi bæjarráðs vegna afgreiðslu ársreiknings 2022 og uppfærslu á prókúru fyrir félagið.

    Ársreikningur undirrituður. Jónu Árnýju Þórðardóttur er falin prókúra fyrir félagið.

  12. 12. Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 2022

    Mál 2309062 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2022 til undirritunar stjórnar. Er þegar samþykktur í samstæðureikningi Fjarðabyggðar af bæjarstjórn.

    Ársreikningurinn er undirritaður.

  13. 13. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2022

    Mál 2309061 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2022 til undirritunar. Ársreikningurinn er þegar samþykktur í samstæðureikningi Fjarðabyggðar af bæjarstjórn.

    Ársreikningur undirritaður.