Bæjarráð, fundur 811
5. september 2023, kl. 09:00 til 09:50, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Kristinn Þór Jónasson, varamaður
Starfsmenn
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 358 liður 3
Fundargerðir funda bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir
Fundargerð bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. eru samþykktar með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2303071 Allur ferill málsins
Framlagt sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka fyrir Fjarðabyggð og stofnanir janúar - júní árið 2023
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Mál 2305061 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að rammaúthlutun í A hluta fyrir fjárhagsáætlun 2024 ásamt fyrstu útgáfu af útgönguspá fyrir árið 2023 ásamt mögulegri stöðu fyrir árið 2024 byggt á tillögu um rammaúthlutun og fyrri áætlun um fjárfestingar 2024.
Bæjarráð samþykkir framlagða fjárhagsramma áætlunar 2024 og felur fjármálastjóra að gefa þá út til nefnda. Kristinn Þór Jónasson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðsluna.
-
3. Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
Mál 2306119 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs minnisblaði og umsókn um þáttöku í tilraunaverkefni stjórnvalda umsamþættingu þjónustu HSA og Fjarðabyggðar við eldra fólk.
Bæjarráð samþykkir að Fjarðabyggð taki þátt í umsókn að tilraunaverkefninu og felur bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsingu þar um.
-
4. Erindi Jaspis ágúst 2023
Mál 2308173 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Jaspis, félagi eldri borgara á Stöðvarfirði varðandi bílastæði við húsnæði félagsins og kaup á borðum.
Bæjarráð vísar erindi til gerðar fjárhagsáætlunar félagsmálanefndar og mannvirkja- og veitunefndar fyrir árið 2024.
-
5. Umsókn um lóð Hjallaleira 8
Mál 2308155 Allur ferill málsins
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðaumsókn Stapavéla ehf. um lóðina Hjallaleiru 8 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
6. Samráð vegna stefnumótunar lagareldis
Mál 2304174 Allur ferill málsins
Framlögð greinargerð frá matvælaráðuneytinu þar sem sveitarfélögum er gefinn frestur til 8. september til að skila athugasemdum vegna hennar og fjallar um stefnumótun í lagareldi.
Bæjarstjóra og atvinnu- og þróunarstjóra falið að vinna umsögn Fjarðabyggðar á grundvelli fyrri umsagna sveitarfélagsins.
-
7. Lok leyfis frá störfum bæjarfulltrúa
Mál 2309027 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur Jóns Björns Hákonarsonar þar sem hann tilkynnir um lok leyfis sem hann tók frá störfum sem bæjarfulltrúi.
-
8. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2022 - 2026
Mál 2205171 Allur ferill málsins
Framlögð ósk Jóhönnu Sigfúsdóttur um leyfi frá störfum í bæjarstjórn frá 11.9.23 til 31.12.23.
Jafnframt tilkynnt um breytingu á skipan Sjálfstæðisflokksins í fræðslunefnd en Sigurjón Rúnarsson tekur við sem aðalmaður af Inga Steini Freysteinssyni og Bryngeir Ágúst Margeirsson kemur inn sem varamaður.
Bæjarráð staðfestir leyfi Jóhönnu ásamt breytingum á nefndarskipan í fræðslunefnd.
-
9. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Mál 2205170 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Bjarka Ingasonar um leyfi frá nefndarstörfum frá 1. september til 31. ágúst 2023. Lagt er til að Elsa Guðjónsdóttir taki sæti aðalmanns og Karen Ragnarsdóttir sæti varamanns í stjórn menningarstofu og safnastofnunar.
Bæjarráð staðfestir leyfi Bjarka ásamt breytingum á nefndarskipan í stjórn menningarstofu og safnastofnunar.
-
10. Starfshópur um skattlagningu orkuvinnslu - Umsögn
Mál 2307031 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar umsögn Samtaka Orkusveitarfélaga við tillögur starfsóps um skattlagningu orkuvinnslu.
-
11. Aðalfundur fulltrúaráðs EBÍ 2023
Mál 2308174 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar boð á aðalfund fulltrúaráðs EBÍ 2023 sem haldinn verður í Reykjavík 6. október kl. 13. Bæjarstjóri tekur þátt á fundinum fyrir hönd Fjarðabyggðar
-
12. Málþing Byggðastofnunar um brothættar byggðir
Mál 2308153 Allur ferill málsins
Framlagt boð Byggðastofnunar á málþing um byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir sem haldið verður á Raufarhöfn 5. október 2023.
Bæjarráð þakkar fyrir boðið og fulltrúar sveitarfélagsins munu taka þátt í málþinginu.
-
13. Ársfundur samtaka sveitarfélaga á köldu, svæðum 2023
Mál 2308177 Allur ferill málsins
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum boðar til aðalfundar samtakanna föstudaginn 22. september kl. 12:30 á Hilton Reykjavík Nordica. Fulltrúar Fjarðabyggðar munu mæta á fundinn.
-
14. Fundagerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands 2023
Mál 2304305 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands nr. 2.
-
15. Mannvirkja- og veitunefnd - 18
Fundargerð 18. fundar mannvirkja- og veitunefndar lögð fram til afgreiðslu.
- 15.1 Áfangastaðir Ferðamálastofa 20212104121
- 15.2 Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði2301057
- 15.3 Bréf til Bæjarráðs2307074
- 15.4 Síkkun á dælu í ES-2 Eskifirði2308159
- 15.5 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
- 15.6 Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL2303071
-
16. Íþrótta- og tómstundanefnd - 122
Fundargerð 128. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til afgreiðslu.
- 16.1 Öruggara Austurland
- 16.2 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar haust 2023
- 16.3 Erindi vegna gjaldskrár
- 16.4 Umsókn Körfuknattleiksdeild Hattar að frístundastyrkjum Fjarðabyggðar
-
17. Félagsmálanefnd - 167
Fundargerð 167. fundar fræðslunefndar tekin til afgreiðslu.
- 17.1 Fundaáætlun félagsmálanefndar haust 20232301154
- 17.2 Öruggara Austurland2308142
- 17.4 Styrkbeiðni frá þroskaþjálfanemum2308143
- 17.5 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA2306119
-
18. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 33
Fundargerð 33. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu.
- 18.1 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021
- 18.2 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði2201189
- 18.3 735 Deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði - breyting, minnkun skipulagssvæðis2204036
- 18.4 Erindi til Umhverfis og skipulagsnefndar. Uppsetning á sólarsellum, vindmyllum og rafhlöðupakka2303262
- 18.5 Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2302173
- 18.6 Umsókn um stöðuleyfi2308037
- 18.7 Umsókn um stöðuleyfi2308074
- 18.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 42308136
- 18.9 Framkvæmdaleyfi vegslóði Mjóafirði2308146
- 18.10 Umsókn um lóð Hjallaleira 82308155
- 18.11 Ný staðsetning gámasvæða2209189
- 18.12 Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL2303071
-
19. Hafnarstjórn - 299
Fundargerð 299. fundar hafnarstjórnar lögð fram til afgreiðslu.
- 19.1 Leyfi fyrir viðbótar hafnarkrana við Mjóeyrarhöfn - Eimskip2307125
- 19.2 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Samskip Hoffell2307095
- 19.3 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - MV Frigg W2308088
- 19.4 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - MV Sif W2308141
- 19.5 Öryggismál hafna2206100
- 19.6 Mengunarmál í höfnum Fjarðabyggðar2308149
- 19.7 Málefni Cruise Iceland 20232308118
- 19.8 Lagarlíf 20232308097
- 19.9 Sjávarútvegsráðstefnan 20232303363
- 19.10 Styrkumsókn - Útsæði - 20232307127
- 19.11 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis uppsjávarfrystihúss2308075
- 19.12 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20232301196