Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 299

28. ágúst 2023, kl. 16:30 til 17:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 811 liður 19

    Fundargerð 299. fundar hafnarstjórnar lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 358 liður 7

    Fundargerð 299. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð 299. fundar hafnarstjórnar er samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Leyfi fyrir viðbótar hafnarkrana við Mjóeyrarhöfn - Eimskip

    Mál 2307125 Allur ferill málsins

    Eimskip hefur óskað eftir leyfi til að koma fyrir öðrum hafnarkrana til viðbótar á vestari hluta Mjóeyrarhafnar. Málið kynnt og verður tekið fyrir að nýju þegar gögn liggja fyrir.

  2. 2. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Samskip Hoffell

    Mál 2307095 Allur ferill málsins

    Erindi frá Samskip dags. 19. júlí 2023 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Aleksei Korchin, skipstjóra á Mv Sif W. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna undanþágu.

  3. 3. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - MV Frigg W

    Mál 2308088 Allur ferill málsins

    Erindi frá Thor Shipping dags. 10. ágúst 2023 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Sergey Konovalenko, skipstjóra á Mv Frigg W. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna undanþágu.

  4. 4. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - MV Sif W

    Mál 2308141 Allur ferill málsins

    Erindi frá Thor Shipping dags. 25. ágúst 2023 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Aleksei Korchin, skipstjóra á Mv Sif W. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna undanþágu.

  5. 5. Öryggismál hafna

    Mál 2206100 Allur ferill málsins

    Öryggismál hafna rædd. Starfsmenn fyrirtækja sem starfa á höfnum í Fjarðabyggð hafa lýst yfir áhyggjum af öryggismálum á höfnum í Fjarðabyggð þar sem umferð almennings er mikil. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.

  6. 6. Mengunarmál í höfnum Fjarðabyggðar

    Mál 2308149 Allur ferill málsins

    Mikið hefur borið á mengun í höfnum Fjarðabyggðar síðustu mánuði. Mengunarmál rædd. Hafnarstjórn þakkar kynninguna og felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.

  7. 7. Málefni Cruise Iceland 2023

    Mál 2308118 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar og umræðna fréttabréf Cruise Iceland og grein á heimasíðu samtakanna vegna nýlegra staðhæfinga um mengun skemmtiferðaskipa. Hafnarstjórn þakkar kynninguna.

  8. 8. Lagarlíf 2023

    Mál 2308097 Allur ferill málsins

    Ráðstefnan Lagarlíf verður haldin 12.-13.október á Grand Hótel Reykjavík. Efnistök ráðstefnunnar verða fiskeldi í sjó og á landi ásamt skel- og þörungarækt. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á ráðstefnuna.

  9. 9. Sjávarútvegsráðstefnan 2023

    Mál 2303363 Allur ferill málsins

    Sjávarútvegsráðstefnan 2023 verður haldin í Hörpu 2.-3. nóvember næstkomandi. Dagskrá ráðstefnunnar hefur nú verið gefin út. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á ráðstefnuna.

  10. 10. Styrkumsókn - Útsæði - 2023

    Mál 2307127 Allur ferill málsins

    Lögð fram styrkumsókn frá Útsæði - bæjarhátíð á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk.

  11. 11. Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis uppsjávarfrystihúss

    Mál 2308075 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar beiðni Eskju um umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis uppsjávarfrystihúss fyrirtækisins.

  12. 12. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023

    Mál 2301196 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 454. og 455. fundar Hafnasambands Íslands