Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 298

10. júlí 2023, kl. 16:00 til 17:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 806 liður 23

    Framlögð til afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 10. júlí 2023.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð hafnarstjórnar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024

    Mál 2305073 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað þar sem farið er yfir framkvæmdir og fjárhag ársins 2023 í samhengi við áætlun 2024. Hafnarstjórn samþykkir miðað við framlagt minnisblað og felur hafnarstjóra að leggja fyrir bæjarráð.

  2. 2. Viljayfirlýsing um samstarf - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2107010 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðuna á Sævarenda 2, Stöðvarfirði. Hafnarstjórn samþykkir að fela hafnarstjóra að ganga frá samningi um verklok framkvæmdarinnar.

  3. 3. Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði

    Mál 2208102 Allur ferill málsins

    Lögð fram til afgreiðslu niðurstaða verðkönnunar fyrir verkhlutana forsteyptar einingar og holpötur fyrir framkvæmdina Lenging Strandarbryggju. Hafnarstjórn samþykkir tilboðin miðað við uppfærðar forsendur og felur verkefnastjóra hafna og hafnarstjóra að ganga frá samningum.

  4. 4. Grútarmengun í Eskifirði

    Mál 2307011 Allur ferill málsins

    Umtalsverð grútarmengun hefur verið viðvarandi í Eskifirði undanfarnar vikur. Hafnarstjórn þakkar kynninguna og felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að fylgja því eftir að hreinsunarvinna sé kláruð og kallað verði eftir úrbótaáætlun Eskju. Jafnframt felur hafnarstjórn verkefnastjóra hafna að kalla eftir viðbragðsáætlun allra sjávarútvegsfyrirtækja í Fjarðabyggð gagnvart mengunarslysum.

  5. 5. Umsókn um styrk vegna Neistaflugs 2023

    Mál 2307008 Allur ferill málsins

    Framlögð styrkbeiðni vegna bæjarhátíðarinnar Neistaflugs 2023. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk.

  6. 6. Ósk um styrk vegna Siglingaklúbb Austurlands 2023

    Mál 2306114 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um styrk frá Siglingaklúbbi Austurlands. Hafnarstjórn þakkar erindið en hefur því miður ekki tök á að styrkja klúbbinn á þessum forsendum. Verkefnastjóra hafna er falið að ræða við forsvarsmenn klúbbsins.

  7. 7. Stormpolli á Mjóeyrarhöfn

    Mál 2209023 Allur ferill málsins

    Samkvæmt bókun 283.fundar hafnarstjórnar er lögð fram kostnaðaráætlun við uppsetningu stormpolla á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að vinna áfram að málinu.

  8. 8. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2023

    Mál 2305025 Allur ferill málsins

    Tilkynning um greiðslu arðs lögð fram til kynningar