Bæjarráð, fundur 810
28. ágúst 2023, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 358 liður 2
Fundargerðir funda bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir
Fundargerð bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. eru samþykktar með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2303071 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar deildayfirlit yfir rekstur málaflokka janúar - júní 2023. Bæjarráð vísar deildaryfirlitum til umfjöllunar í viðkomandi fagnefnd og óskar eftir tillögum að viðbrögðum við frávikum.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Mál 2305061 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að fjárhagsrömmum fyrir fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2024. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð og tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
3. Brunavarnaráætlun 2023
Mál 2308147 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar drög að brunavarnaráætlun Fjarðabyggðar. Endanleg útgáfa kemur til afgreiðslu bæjarráðs.
-
4. Auglýsingasamningur 2021-2023
Mál 2107110 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu- og upplýsingamála um riftun á auglýsingasamning við KFF. Bæjarráð samþykkir að rifta samningnum.
-
5. Íslendingadagar 22. -25. sept.
Mál 2307047 Allur ferill málsins
Boð á Íslandsdaga í Gravelines 22. til 25. september. Bæjarráð þakkar fyrir boðið og samþykkir að senda fulltrúa með sama hætti og verið hefur.
-
6. Boð um þátttöku í samráði. Drög að reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga
Mál 2308102 Allur ferill málsins
Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 151/2023 - "Drög að reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga". Framlagt og kynnt.
-
7. Auglýsingasamningur við KFA 2023
Mál 2308140 Allur ferill málsins
Framlögð drög að auglýsingasamning við KFA ásamt minnisblaði forstöðumanns stjórnsýslu og upplýsingamála. Bæjarráð samþykkir samningin og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
8. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 4
Mál 2308136 Allur ferill málsins
Framlögð drög að lóðarleigusamningi um Búðareyri 4. Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
-
9. Hver eru framtíðar útflutningstækifæri á Austurlandi? - Málþing 2023
Mál 2308145 Allur ferill málsins
Framlagt boð á vinnufund Íslandsstofu um framtíðar útflutningstækifæri á Austurlandi sem fram fer á Egilsstöðum þann 30. ágúst. Bæjarráð þakkar fyrir boðið og fulltrúar frá sveitarfélaginu munu taka þátt í henni.
-
10. Fræðslunefnd - 128
Fundargerð 128. fundar fræðslunefndar frá 22. ágúst lögð fram til staðfestingar
- 10.1 Skólabyrjun skólaárið 2023-20242308068
- 10.2 Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð2302067
- 10.3 Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 20242305048
- 10.4 Fundaáætlun fræðslunefndar haust 20232308006
- 10.5 Snjalltækjavæðing og reglur um snjalltæki í grunnskólum Fjarðabyggðar1806053