Fræðslunefnd, fundur 128
22. ágúst 2023, kl. 16:30 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Anna Marín Þórarinsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
- Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Lísa Lotta Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Anna Marín Þórarinsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 810 liður 10
Fundargerð 128. fundar fræðslunefndar frá 22. ágúst lögð fram til staðfestingar
Bæjarstjórn, fundur 358 liður 8
Fundargreð 128. fundar fræðslunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tók: Birgir Jónsson.
Fundargerð 128. fundar fræðslunefndar er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Skólabyrjun skólaárið 2023-2024
Mál 2308068 Allur ferill málsins
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu gerði grein fyrir stöðunni í leik-, grunn- og tónlistarskólum í Fjarðabyggð, mönnun og framkvæmdir. Búið er að ráða í flestar stöður. Unnið er að framkvæmdum við Eskifjarðaskóla og munu þær standa eitthvað fram á haustið, en það mun þó ekki hafa áhrif á skólabyrjun í Eskifjarðarskóla.
-
2. Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð
Mál 2302067 Allur ferill málsins
Til umræðu voru hugmyndir um breytingar á reglum um kennslutímaúthlutun til grunnskóla.
Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024
Mál 2305048 Allur ferill málsins
Farið var yfir undirbúningsvinnu vegna starfs- og fjárhagsáætlunargerðar í fræðslumálum fyrir árið 2024.
Frekari umræðu um starfs- og fjárhagsáætlun vísað til næsta fundar nefndarinnar.
-
4. Fundaáætlun fræðslunefndar haust 2023
Mál 2308006 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tillaga að fundaáætlun fræðslunefndar fyrir haustið 2023. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu
-
5. Snjalltækjavæðing og reglur um snjalltæki í grunnskólum Fjarðabyggðar
Mál 1806053 Allur ferill málsins
Töluverð umræða hefur verið í samfélaginu um notkun snjallsíma í skólum. Fjarðabyggð setti sér ákveðnar reglur haustið 2018 sem fóru í endurskoðun ári síðar. Almenn sátt hefur verið með reglurnar.
Nefndin felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að leita álits hjá starfsfólki skólanna sem og Ungmennaráði Fjarðabyggðar varðandi reglurnar.