Fræðslunefnd, fundur 127
14. júní 2023, kl. 16:30 til 18:50, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
- Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Lísa Lotta Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Anna Marín Þórarinsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 804 liður 26
Fundargerð 127. fundar fræðslunefndar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð fræðslunefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
Dagskrá
-
1. Ungmennaráð 2022
Mál 2203101 Allur ferill málsins
Fyrir liggur umsögn íþróttakennara og skólastjórnenda um tillögu ungmennaráðs um breytt fyrirkomulag sundkennslu 7. - 10. bekkjar í Fjarðabyggð. Fulltrúar allra grunnskólanna í Fjarðabyggð vilja óbreytt fyrirkomulag sundkennslu hjá nemendum í 7. bekk, en hugnast alveg að gera ákveðnar breytingar á fyrirkomulagi sundkennslu hjá 8.-10. bekk. Þeir telja mikilvægt að skoða hvað þurfi að koma í staðinn fyrir sund í stundatöflu þegar nemendur hafa staðist stöðupróf í sundi með áherslu á björgunarþáttinn. Einnig telja þeir mikilvægt að hafa í huga að aðstaða er misjöfn eftir byggðarkjörnum og mikilvægt að taka tillit til þess. Fræðslunefnd felur grunnskólunum í Fjarðabyggð að taka upp stöðupróf í sundi fyrir 8.-10. bekk að hausti og felur skólunum að útfæra tillöguna nánar.
-
2. Samskiptastefna 2022-2026
Mál 2210143 Allur ferill málsins
Drögum að samskipta- og vefstefnu Fjarðabyggðar ásamt stefnu um innri samskipti var vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar fagnefnda. Fræðslunefnd óskaði eftir umsögn skólastjórnenda. Umsögn liggur fyrir frá grunnskólastjórum, fræðslunefnd óskar eftir umsögn leik- og tónlistarskóla. Frestað til næsta fundar nefndarinnar.
-
3. Jafnréttisstefna 2023-2026
Mál 2305145 Allur ferill málsins
Drög að Jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2023 til 2026 sem vísað var frá bæjarstjórn til fagnefnda var tekin til umfjöllunar í fræðslunefnd. Fræðslunefnd samþykkir drögin með ákveðnum athugasemdum. Fræðslustjóra er falið að koma athugasemdum áfram.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024
Mál 2305048 Allur ferill málsins
Starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024 tekin til umræðu. Fræðslustjóri fór yfir helstu breytingar sem fyrirséðar eru á áætluðum fjölda nemenda, kennsluaðstöðu og kennslubúnaði ásamt þeim breytingum sem áherslur í fræðslu- og frístundamálum kalla á. Fræðslustjóra er falið að ljúka við drög að starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum fyrir árið 2024.