Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 126

31. maí 2023, kl. 16:30 til 18:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
  • Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Lísa Lotta Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Anna Marín Þórarinsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 802 liður 10

    Fundargerð 126. fundar fræðslunefndar frá 31. maí lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 355 liður 3

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 31. maí staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Samskiptastefna 2022-2026

    Mál 2210143 Allur ferill málsins

    Drögum að samskipta- og vefstefnu Fjarðabyggðar ásamt stefnu um innri samskipti var vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar fagnefnda. Fræðslunefnd óskar eftir umsögn skólastjórnenda. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.

  2. 2. Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð

    Mál 2302067 Allur ferill málsins

    Farið var yfir kynningu Fjarðabyggðar sem kynnt var fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Mennta- og barnamálaráðuneytinu og fulltrúum sveitarfélaga á Austurlandi 24. maí. Um er að ræða sjálfsmatstæki sem ætlað er til að auðvelda ákvarðanatöku í úthlutun fjármagns til grunnskóla. Lagt fram til kynningar.

  3. 3. Fagháskólanám í leikskólafræði

    Mál 2305272 Allur ferill málsins

    Farið var yfir kynningu fulltrúa Háskólans á Akureyri, HA, á fagháskólanámi í leikskólafræði sem verður hluti af námsframboði HA og HÍ næsta skólaár. Fræðslunefnd þakkar kynninguna og fagnar því að slíkt nám sé í boði fyrir starfsfólk leikskóla.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024

    Mál 2305048 Allur ferill málsins

    Farið yfir drög að áætlun og skoðaðar leiðir til hagræðingar. Frekari umræðu frestað til næsta fundar nefndarinnar 14. júní næstkomandi.