Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 809

21. ágúst 2023, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 358 liður 1

    Fundargerðir funda bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

    Fundargerð bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. eru samþykktar með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2303071 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit yfir rekstur og fjárfestingar janúar - júní 2023 auk yfirlits yfir launakostnað og skatttekjur janúar - júlí 2023. Framlagt og kynnt.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024

    Mál 2305061 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað og tillögur fjármálastjóra um forsendur tekju- og gjaldaliða fyrir fjárhagsáætlun 2024 - 2027 auk nýjustu þjóðhagspár, dagsetninga í áætlunarferlinu og niðurstöðu bæjarráð frá í júlí um viðbætur í úthlutaðan ramma. Fjármálastjóra falið að vinna málið áfram á grunni tillagna í minnisblaðinu.

  3. 3. Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023

    Mál 2303238 Allur ferill málsins

    Fulltrúar frá Deloitte komu á fund bæjarráð kl. 10:00 og farið var yfir stöðu mála í vinnu við stöðuúttekt stjórnsýslunnar.

  4. 4. Yfirlýsing vegna kaupréttar

    Mál 2209031 Allur ferill málsins

    Tekin fyrir að nýju matsgerð dómskvaddra matsmanna vegna fasteignarinnar Hafnargötu 6 á Reyðarfirði. Einnig er lagt fram minnisblað lögmanns sveitarfélagsins vegna matsgerðarinnar.

    Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram á grundvelli minnisblaðsins og umræðna á fundinum.

  5. 5. Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði

    Mál 2301057 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað fasteigna- og framkvæmdafulltrúa þar sem farið var yfir stöðu mála vegna framkvæmda við Eskifjarðarskóla.

  6. 6. Umsókn um lóð Sólbakki 2-6

    Mál 2307046 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn Nestaks ehf. vegna lóðarinnar að Sólbakka 2-6 í Neskaupstað.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  7. 7. Umsókn um lóð Sæbakki 17

    Mál 2308021 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn Þórarins Elí Helgasonar vegna lóðarinnar að Sæbakka 17 í Neskaupstað.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  8. 8. Umsókn um lóð Búðarmelur 7 a-b-c

    Mál 2308059 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar, f.h. Búðinga ehf vegna lóðarinnar að Búðarmel 7a-c á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  9. 9. Umsókn um leyfi fyrir uppsetningu skilta

    Mál 2308007 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd erindi er varðar leyfi til uppsetningu skilta um sögu Stöðfirskra báta og skipa, og styrk til uppsetningarinnar. Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 25.000 kr. af liðnum óráðstafað.

  10. 10. Beiði Loðnuvinnslunar til afnota íþróttahús Fáskrúðsfjarðar vegna Árshátíðar

    Mál 2308080 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Loðnuvinnslunar vegna beiðni um leigu á íþróttahúsinu á Fáskúðsfirði. Einnig minnsblað deildarstjóra íþróttamannvirkja varðandi erindið.

    Bæjarráð samþykkir að leigja íþróttahúsið.

  11. 11. Arctic Circle þing Hringborðsins 19.-21. október 2023

    Mál 2308082 Allur ferill málsins

    Boð um þátttöku á tíunda þingi Arctic Circle, Hringborði Norðurslóða, sem fram fer dagana 19. - 21. október 2023. Lagt fram til kynningar.

  12. 12. Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands 2023

    Mál 2304052 Allur ferill málsins

    Gögn frá ársfundi StarfA 2023 lögð fram til kynningar.

  13. 13. Mannvirkja- og veitunefnd - 16

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 16. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 14. júní lögð fram til staðfestingar

    1. 13.1 Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 20242305071