Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar

Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 9

5. júní 2023, kl. 16:30 til 19:10, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, varaformaður
  • Bjarki Ingason, aðalmaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður
  • Benedikt Jónsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 804 liður 29

    Fundargerð 9. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar lögð fram til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024

    Mál 2305067 Allur ferill málsins

    Farið yfir undirbúning og vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2024

  2. 2. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar

    Mál 2211009 Allur ferill málsins

    Forstöðumaður menningarstofu gerði grein fyrir upphafsfundi sem haldinn var í Valaskjálf um gerð Menningarstefnu fyrir Austurland.

  3. 3. Verkefni menningarstofu 2023

    Mál 2301047 Allur ferill málsins

    Farið yfir verkefni menningarstofu það sem af er árinu 2023 og það sem framundan er í starfinu yfir sumarið og fram á haustið.

  4. 4. Samskiptastefna 2022-2026

    Mál 2210143 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar fagnefnda drögum að samskipta- og vefstefnu Fjarðabyggðar ásamt stefnu um innri samskipti.

    Framlagt og kynnt.

  5. 5. Jafnréttisstefna 2023-2026

    Mál 2305145 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til fagnefnda jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2023 til 2026 til umfjöllunar og umræðu milli umræðna.

    Fram lagt til kynningar og bæjarritara falið að koma á framfæri ábendingum.