NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 8
9. maí 2023, kl. 16:30 til 18:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Margrét Sigfúsdóttir, varamaður
- Bjarki Ingason, aðalmaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður
- Benedikt Jónsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 799 liður 22
Fundargerð 8. fundar stjórnar Menningarstofu- og safnastofnunar lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 354 liður 9
Fundargerð 8. fundar stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar frá 9. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tók Elís Pétur Elísson
Fundargerð 8. fundar stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun í menningarmálum 2024
Mál 2305067 Allur ferill málsins
Farið yfir undirbúning og vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2024. Verður tekið fyrir á næsta fundi stjórnar.
-
2. Erindi Tanna Travel til stjórnar menningarstofu og safnastofnunar 2023
Mál 2303163 Allur ferill málsins
Framlagt erindi til stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar frá Tanna Travel um verðskrá safna vegna lokunar Stríðsárasafns.
Stjórn getur ekki orðið við erindi. Forstöðumanni Safnastofnunar falið að svara bréfritara.
-
3. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Mál 2206071 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði drögum að kostnaðaráætlun vegna uppbyggingar bragga á safnasvæði Íslenska stríðsárasafnsins ásamt minnisblöðum um uppsetningu sýningar fyrir sumarið 2023 og forvörslu muna safnsins til óákveðins tíma.
Stjórn samþykkir fyrir sitt leyti tillögur þær sem fram eru lagðar um húsaleigu vegna forvörslu muna Stríðsárasafnsins og sýningu þess sumarið 2023 við Ægisgötu á Reyðarfirði. Stjórn vísar til bæjarráðs kostnaðarþáttum þar sem málaflokkurinn hefur ekki fjármagn til ráðstafana sem lagðar eru fram í tillögum.
-
4. Framlag til reksturs
Mál 2304117 Allur ferill málsins
Stjórn samþykkir að veita styrk til reksturs og endurbóta húsnæðis Sköpunarmiðstöðvarinnar að fjárhæð 2 milljónir kr. samkvæmt fjárhagsáætlun ársins.
-
5. Egilsbúð - búnaður hússins
Mál 2305022 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá Guðjóni Birgi um ástand á búnaði í Egilsbúð á Norðfirði.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
-
6. Saga Norðfjarðar frá 1929 - 1998
Mál 2303266 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar í stjórn menningarstofu- og safnastofnunar erindi Samvinnufélags útgerðamanna á Norðfirði vegna ritunar á Sögu Norðfjarðar. Samvinnufélagið leggur til að félagið standi straum af kostnaði við framhald ritunar sögu Norðfjarðar frá 1929 til 1998 og sveitarfélagið annist útgáfu bókarinnar.
Stjórnin þakkar samvinnufélaginu fyrir veglegt framlag til söguritunar og samþykkir að standa straum af kostnaði við útgáfu bókarinnar.
-
7. Í framhaldi af snjóflóðum 2023 - Skjalasafn Norðfjarðar - saga bæjarins.
Mál 2304217 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til stjórnar Menningarstofu- og Safnastofnunar erindi Áslaugar Lárusdóttur vegna Skjalasafns Norðfjarðar. Á fjárfestingaráætlun ársins er gert ráð fyrir lokaáfanga byggingar skjalasafnsins að Þiljuvöllum á Norðfirði og hillir undir flutning skjalasafnsins í varanlegt húsnæði. Fram lagt og kynnt.
-
8. Framkvæmdasvið verkefni 2023 - bókasafnið á Eskifirði
Mál 2303230 Allur ferill málsins
Skýrsla frá Eflu verkfræðistofu var lögð fyrir bæjarráð þar sem kynntar voru mælingar og niðurstöður úr sýnatökum í bókasafninu á Eskifirði og grunnskólanum. Farið yfir stöðu bókasafnsins. Almenningsbókasafni hefur verið lokað en skólabókasafnið þjónar grunnskólanum á annarri hæð skólans.
Forstöðumaður Safnastofnunar fór yfir ráðstafanir sem gerðar hafa verið vegna lokunar safnsins og forvörslu safnmuna.
-
9. BRAS - skýrslur og samningar
Mál 2012097 Allur ferill málsins
Forstöðumaður Menningarstofu kynnti skýrslu um BRAS 2022.