Saga Norðfjarðar frá 1929 - 1998
Mál 2303266 Fyrst á dagskrá 27. mars 2023, síðast 25. maí 2023. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Stjórn menningarstofu og safnastofnunar.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2023
Bæjarráð, fundur 790 liður 7
Framlagt erindi frá Samvinnufélagi útgerðarmanna á Norðfirði þar sem samvinnufélagið lýsir yfir að það greiði kostnað við þann hluta söguritunar Norðfjarðarsögu sem er frá 1929 til 1998. Óskað er eftir að sveitarfélagið greiði útgáfu verksins þegar ritun er lokið.
Bæjarráð fagnar áhuga Samvinnufélagsins og þakkar áhuga á ritun sögu Norðfjarðar. Erindi vísað til umfjöllunar stjórnar Menningarstofu og Safnastofnunar.
-
Bæjarstjórn, fundur 350 liður 3.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 790“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 8 liður 6
Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar í stjórn menningarstofu- og safnastofnunar erindi Samvinnufélags útgerðamanna á Norðfirði vegna ritunar á Sögu Norðfjarðar. Samvinnufélagið leggur til að félagið standi straum af kostnaði við framhald ritunar sögu Norðfjarðar frá 1929 til 1998 og sveitarfélagið annist útgáfu bókarinnar.
Stjórnin þakkar samvinnufélaginu fyrir veglegt framlag til söguritunar og samþykkir að standa straum af kostnaði við útgáfu bókarinnar.
-
Bæjarráð, fundur 799 liður 22.6
Fundargerðin „Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 8“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 354 liður 9.6
Fundargerðin „Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 8“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.