Bæjarráð, fundur 799
15. maí 2023, kl. 08:30 til 12:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Birgir Jónsson, varamaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 354 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs nr. 799 og 800 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson, Jóhanna Sigfúsdóttir, Elís Pétur Elísson, Arndís Bára Pétursdóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir og Birgir Jónsson.
Fundargerð 799. fundar bæjarráðs, utan liðar 10 er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2303071 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur Fjarðabyggðar fyrstu 3 mánuði ársins ásamt deildayfirliti.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Mál 2305061 Allur ferill málsins
Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunarvinnu árið 2024.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunarvinnu.
-
3. Lántaka á árinu 2023
Mál 2305063 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað fjármálastjóra um þörf á fjármögnun fjárfestinga og rekstrar Fjarðabyggðar ásamt drögum að lánasamningi við Lánasjóð sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir að tekið verði lán að fjárhæð 500 milljónir kr. hjá Lánasjóði sveitarfélaga sbr. framlagða tillögu. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar. Láninu er ætlað að styrkja sjóðsstöðu sveitarfélagsins og lækka yfirdrátt. Lántökunni er jafnframt vísað til gerðar viðauka.
-
4. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Mál 2206071 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn Menningarstofu og Safnastofnunar til bæjarráðs tillögu um forvörslu muna Stríðsárasafnsins vegna lokunar safnsins og sýningu þess sumarið 2023 við Ægisgötu á Reyðarfirði en áætlaður kostnaður nemur um 4 milljónum kr.
Bæjarráð samþykkir tillögu stjórnar en kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21-690.
-
5. Tillaga að tilfærslu kostnaðar vegna troðaravinnu í Oddsskarði.
Mál 2305045 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um tilfærslu kostnaðar á skíðasvæðinu í Oddskarði.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
-
6. Starfshópur vegna stefnumótun íþróttamannvirkja
Mál 2303018 Allur ferill málsins
Farið yfir hlutverk starfshóps um mat á viðhaldsþörf og stefnumótun íþróttamannvirkja. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur tilnefnt Arndísi Báru Pétursdóttur, Kristinn Magnússon og Þórdísi Mjöll Benediktsdóttur sem fulltrúa í hópinn. Starfsmenn hópsins eru tilnefnd Laufey Þórðardóttir og Magnús Árni Gunnarsson en nefndin leggur til að jafnframt verð fulltrúi frá framkvæmdasviði í hópnum.
Bæjaráð samþykkir að tilnefnda verkefnastjóra viðhalds fasteigna sem fulltrúa framkvæmdasviðs í hópinn og felur bæjarritara að útfæra erindisbréf og leggja fyrir bæjarráð til staðfestingar.
-
7. Eftirlit með fjármálum sveitarfélaga á árinu 2023
Mál 2305083 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar áherslur eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga varðandi eftirlit með fjármálum svetarfélaga á árinu 2023.
-
8. Vegna kæru á hljóðmön - krafa um endurgreiðslu málskostnaðar.
Mál 2304306 Allur ferill málsins
Tekið fyrir að nýju bréf vegna kröfu um endurgreiðslu málskostnaðar.
Bæjarráð hafnar kröfu um greiðslu málskostnaðar.
-
9. Rásfundur fyrir forsetakosningar 2024
Mál 2305054 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð á Rásfund landkjörstjórnar fyrir forsetakosningar 2024.
Bæjarráð felur formanni yfirskjörstjórnar að taka þátt í fundinum.
-
10. Heimild til nýtingar varpstaða
Mál 2304302 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar og frekari skoðunar bæjarráðs nýtingu varpstaða í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að heimild sem veitt var á árinu 2019 gildi út árið 2023. Ekki voru gerðar athugasemdir árið 2019 við að umrædd varpsvæði yrðu nýtt en það verði án allra takmarkana á annarri nýtingu eða umgengni um svæðin. Heimildin falli niður 31.12.2023. Jafnframt verði svæðið ekki boðið út heldur verði umrætt landsvæði sem almennt land í eigu Fjarðabyggðar án heimilda til nota af neinu tagi og sé opið almenningi.
-
11. Ungmennaráð 2022
Mál 2203101 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til bæjarráðs tillögu ungmennaráðs um breytingu á starfstíma fulltrúa í ungmennaráði sbr. 5. gr. erindisbréfs ráðsins.
Vísað til bæjarritara og tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
-
12. Tilkynning um niðurstöðu atkvæðagreiðslu félagsmanna Kjalar um verkföll
Mál 2305106 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar tilkynning um niðurstöðu atkvæðagreiðslu félagsmanna Kjalar um verkföll.
Vísað til bæjarritara og deildarstjóra íþróttamannvirkja auk umfjöllunar í íþrótta- og tómstundanefnd.
-
13. Lóðaúthlutanir til Alvis Five Stars Cap á Reyðarfirði
Mál 2305101 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri og skipulags- og umhverfisfulltrúi leggja til að loknum viðræðum við SIA Five Stars Caps að lóðunum að Búðarmel 17 - 31 á Reyðarfirði verði úthlutað til fyrirtækisins ásamt því að samkomulag verði gert við umsækjanda um rétt Fjaraðbyggðar til afturköllunar lóðaúthlutana.
Bæjarráð samþykkir að samkomulag verði gert um úthlutun lóðanna og felur bæjarstjóra undirritun samnings.
-
14. Umsókn um lóð Búðarmelur 25
Mál 2303383 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju lóðaumsókn Five Stars Cap um lóðina að Búðarmel 25 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að samningi frágengnum.
-
15. Umsókn um lóð Búðarmelur 21
Mál 2303381 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju lóðaumsókn Five Stars Cap um lóðina að Búðarmel 21 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að samningi frágengnum.
-
16. Umsókn um lóð Búðarmelur 31
Mál 2303384 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju lóðaumsókn Five Stars Cap um lóðina að Búðarmel 31 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að samningi frágengnum.
-
17. Umsókn um lóð Búðarmelur 27
Mál 2303411 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju lóðaumsókn Five Stars Cap um lóðina að Búðarmel 27 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að samningi frágengnum.
-
18. Umsókn um lóð Búðarmelur 29
Mál 2303412 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju lóðaumsókn Five Stars Cap um lóðina að Búðarmel 29 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að samningi frágengnum.
-
19. Umsókn um lóð Búðarmelur 17
Mál 2303379 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju lóðaumsókn Five Stars Cap um lóðina að Búðarmel 17 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að samningi frágengnum.
-
20. Umsókn um lóð Búðarmelur 23
Mál 2303382 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju lóðaumsókn Five Stars Cap um lóðina að Búðarmel 23 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að samningi frágengnum.
-
21. Umsókn um lóð Búðarmelur 19
Mál 2303380 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju lóðaumsókn Five Stars Cap um lóðina að Búðarmel 19 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að samningi frágengnum.
-
22. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 8
Fundargerð 8. fundar stjórnar Menningarstofu- og safnastofnunar lögð fram til afgreiðslu.
- 22.1 Starfs- og fjárhagsáætlun í menningarmálum 20242305067
- 22.2 Erindi Tanna Travel til stjórnar menningarstofu og safnastofnunar 20232303163
- 22.3 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
- 22.4 Framlag til reksturs2304117
- 22.5 Egilsbúð - búnaður hússins2305022
- 22.6 Saga Norðfjarðar frá 1929 - 19982303266
- 22.7 Í framhaldi af snjóflóðum 2023 - Skjalasafn Norðfjarðar - saga bæjarins.2304217
- 22.8 Framkvæmdasvið verkefni 2023 - bókasafnið á Eskifirði2303230
- 22.9 BRAS - skýrslur og samningar2012097
-
23. Íþrótta- og tómstundanefnd - 118
Fundargerð 118. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til afgreiðslu.
- 23.1 Styrkir til íþrótta- og tómstundafélaga 2023
- 23.2 Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu 2023-2025
- 23.3 Umsókn um íþróttastyrk - Rekstrar og uppbyggingarstyrkur Kaj
- 23.4 Umsókn um íþróttastyrk - Rekstrar og uppbyggingarstyrkur Golfklúbbur Norðfjarðar
- 23.5 Umsókn um íþróttastyrk - Rekstrar og uppbyggingar styrkur Dreki
- 23.6 Umsókn um íþróttastyrk - Rekstrar og uppbyggingarstyrkur
- 23.7 Umsókn um íþróttastyrk - Rekstrar og uppbyggingarstyrkur GF
- 23.8 Umsókn um íþróttastyrk - Rekstrar og uppbyggingarstyrkur Golfkl. Byggðarh.
- 23.9 Umsókn um íþróttastyrk - Rekstrar og uppbyggingarstyrkur Blær
- 23.10 Umsókn um íþróttastyrk - Meginfélag
- 23.11 Umsókn um íþróttastyrk - Austri Meginfélag
- 23.12 Umsókn um íþróttastyrk - Leiknir - Meginfélag
- 23.13 Umsókn um íþróttastyrk - Valur - Meginfélag
- 23.14 Umsókn um íþróttastyrk - Súlan - Meginfélag
- 23.15 Umsókn um íþróttastyrk - Þróttur - Meginfélag
- 23.16 Umsókn um íþróttastyrk - Samvinnustsyrkur KFA/FHL
- 23.17 Umsókn um íþróttastyrk - Samvinnustyrk SFF
- 23.18 Umsókn um íþróttastyrk - Sammvinnustyrkur YFF
- 23.19 Umsókn um íþróttastyrk - Önnur félög en meginfélög KFA/FHL
- 23.20 Tillaga að tilfærslu kostnaðar vegna troðaravinnu í Oddsskarði.
- 23.21 Starfsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024
- 23.22 Ungmennaráð - 6