Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 23

18. apríl 2023, kl. 08:15 til 09:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 796 liður 27

    Fundargerð 23. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 18. apríl lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 352 liður 6

    Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 18. apríl utan liðar 9 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar

    Mál 2302213 Allur ferill málsins

    Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar. Kynning frá formanni Skógræktarfélags Reyðarfjarðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að uppfæra teikningu og samning og leggja fyrir að nýju.

  2. 2. Strandgata 98B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2304049 Allur ferill málsins

    Strandgata 98B, Eskifirði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  3. 3. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Smiðjustígur 4

    Mál 2304056 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Smiðjustíg 4, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.

  4. 4. Umsókn um lóð Litlagerði 6

    Mál 2304045 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir einbýlishús að Litlagerði 6, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Nefndin áréttar að samkvæmt gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið er gert ráð fyrir húsi á einni hæð á lóðinni.

  5. 5. Framkvæmdaleyfi Fell skógrækt

    Mál 2304051 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á jörðinni Fell í Breiðdal. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun á framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á jörðinni Fell í Breiðdal að undanskyldu svæði neðan vegar, PT 12-17, vegna skilmála landnotkunarflokks um landbúnaðarsvæði: Skógrækt er þó ekki heimil á góðu akuryrkjulandi, nema um skjólbelti sé að ræða, í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  6. 6. Tilkynning um kæru v Hafnargötu 36 FÁSK

    Mál 2304061 Allur ferill málsins

    Tilkynning um kæru v Hafnargötu 36 FÁSK. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að fella byggingarleyfi er varðar hljóðmön við Hafnargötu 36 úr gildi og fara með málið grenndarkynningu.

  7. 7. Númerslausir bílar 2023

    Mál 2304069 Allur ferill málsins

    Kynning á verkefni er snýr að númerslausum bílum í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.

  8. 8. Deiliskipulag Nes- og Bakkagil

    Mál 2303368 Allur ferill málsins

    Framlagt tilboð frá Landmótun ehf. vegna vinnu við nýtt deiliskipulag að Nes- og Bakkagili Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagt tilboð og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að fylgja málinu fast eftir.

  9. 9. Umferðaröryggi milli leikskóla og Heiðavegs 7 Reyðarfirði

    Mál 2304097 Allur ferill málsins

    Umferðaröryggi milli leikskóla og Heiðavegs 7 Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samráði við bæjarverkstjóra.

  10. 10. Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt

    Mál 2208107 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt Eyri, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  11. 11. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Melagata 13

    Mál 2304103 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Melagötu 13, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.