Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 352

27. apríl 2023, kl. 16:00 til 17:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (13)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, forseti bæjarstjórnar
  • Elís Pétur Elísson, varamaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2022

    Mál 2212099 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:05:08

    Bæjarstjóri mælti fyrir ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2022 við síðari umræðu.

    Til máls tóku: Stefan Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Elís Pétur Elísson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Birgir Jónsson.

    Bókun Framsóknarflokks og Fjarðalistans við seinni umræðu um ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana 2022.

    Í ljósi efnahagsumhverfisins sem nú er hérlendis þá er rekstrarniðurstaða ársreiknings 2022 ásættanleg og sýnir batnandi stöðu A-hlutans milli ára þrátt fyrir stóra óvissuþætti. Meirihlutinn ítrekar að áfram verði lögð áhersla á að halda vel utan um rekstur A-hluta til framtíðar og rýnt verður áfram í rekstur sveitarfélagsins á öllum sviðum líkt og verið hefur.

    Gríðarlega há verðbólga einkennir nú öll hagkerfi sem hefur sett mark sitt á rekstur sveitarfélaga á Íslandi og er Fjarðabyggð þar engin undantekning. Samhliða hárri verðbólgu og mikilli hækkun á stýrivöxtum hafa laun vaxið umfram spár með tilheyrandi áhrifum á sveitarfélagið. Sömuleiðis er ljóst að breytingar á lífeyrisskuldbindingum sveitarfélagsins setja mark sitt á lokaniðurstöðu ársreikningsins en hafa þó ekki áhrif á sjóðstreymi. Áfram er því mikilvægt að lögð sé áhersla á að rekstur Fjarðabyggðar haldi sig innan útgefinna fjárhagsramma. Þá er það ljóst að tekjustofnar sveitarfélaga haldast ekki í hendur við aukna þjónustu (sem þau sinna) við íbúa sína og mikilvægt að leiða þau mál til lykta með ríkisvaldinu hið fyrsta til að tryggja sjálfbæran rekstur sveitarfélaga til framtíðar.

    Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2022 gefur engu að síður mynd af sterkri fjárhagslegri stöðu sveitarfélagsins og öflugu atvinnulífi þess og að það sé bjart framundan í Fjarðabyggð.

    Bókun Sjálfstæðisflokksins við síðari umræðu um ársreikning Fjarðabyggðar 2022.

    Sjálfstæðisflokkurinn lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu A hluta reksturs Fjarðabyggðar. Ársreikningur sveitarfélagsins sýnir glögglega að aðhalds er þörf, reksturinn er ósjálfbær og að öllu óbreyttu stefnir í greiðsluþrot.

    Á undanförnum árum hefur sveitarfélag glímt við umtalsverðar framúrkeyrslur í rekstri A hlutans og skilað lakari afkomu en gert var ráð fyrir þrátt fyrir umtalsverða tekjuaukningu. Lántökur eru umfram það sem lagt var upp með í fjárhagsáætlun, launakostnaður er hærri en gert var ráð fyrir, afkoma er verri og framlegð af rekstri fer versnandi. Áætlanir sveitarfélagsins ganga ekki eftir þar sem skortur er á aga og ábyrgð í rekstri.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2022 og áritaði ársreikninginn.

  2. 2. Bæjarráð - 795

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:51:48

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Jóhanna Sigfúsdóttir, Kristinn Þór Jónasson, Ragnar Sigurðsson, Elís Pétur Elísson, Birgir Jónsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 17. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL2303071
    2. 2.2 Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 202323032381:03:00
    3. 2.3 World Hydrogen Summit 202323040741:06:16
    4. 2.4 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira23020210:52:16
    5. 2.5 Fjarskipatasamband í fólkvang Neskaupstaðar2304065
    6. 2.6 Drög að reglum um stuðningsþjónustu2303034
    7. 2.7 Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 21.apríl 20232304053
    8. 2.8 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20232301183
    9. 2.9 Félagsmálanefnd - 1642303021F
  3. 3. Bæjarráð - 796

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:53:40

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 24. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Bref til bæjarstjórnar varðand Kirkjuból í Neskaupstað2301049
    2. 3.2 Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022 og 20232205294
    3. 3.3 Erindisbréf félagsmálanefndar1805116
    4. 3.4 Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar2205298
    5. 3.5 Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu2301026
    6. 3.6 Siðareglur kjörinna fulltrúa1805176
    7. 3.7 Kjarasamningar 2023 - áhrif nýrra kjarasamninga2304177
    8. 3.8 Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 12304190
    9. 3.9 Reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar2304136
    10. 3.10 Þróunarfélag um Grænan orkugarð2302181
    11. 3.11 Kauptilboð í Sólvelli 8B Breiðdalsvík2304182
    12. 3.12 Framkvæmdasvið verkefni 202323032300:53:40
    13. 3.13 Uppsetning Mílu á fjarskiptamastri á Fjarðabyggðahöllinni Reyðarfirði2304066
    14. 3.14 Skipulag almannavarna2105157
    15. 3.15 Umsókn um lóð Litlagerði 62304045
    16. 3.16 Kvörtun frá íbúum Álfabrekku Fáskrúðsfirði23041380:55:04
    17. 3.17 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlannds fyrir 20222304187
    18. 3.18 Boð Matvælaráðuneytisins til samráðs vegna stefnumótunar lagareldis23041740:55:32
    19. 3.19 Mótum framtíðina saman2304185
    20. 3.20 Samtal um nýtingu vindorku - Orkuskipti2304184
    21. 3.21 Ársfundur Austurbrúar 20232304186
    22. 3.22 Aðalfundur SSA 20232304010
    23. 3.23 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 20232302093
    24. 3.24 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20232301183
    25. 3.25 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20232301183
    26. 3.26 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20232301183
    27. 3.27 Umhverfis- og skipulagsnefnd - 232304004F
    28. 3.28 Fræðslunefnd - 1242304012F
    29. 3.29 Mannvirkja- og veitunefnd - 132304015F
  4. 4. Fræðslunefnd - 124

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:24:00

    Til máls tók Birgir Jónsson.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 19. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Kennslutímamagn grunnskóla 2023-20242304102
    2. 4.2 Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð23020671:24:56
    3. 4.3 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
    4. 4.4 Hinsegin fræðsla í grunnskólum Fjarðabyggðar23040631:27:44
  5. 5. Mannvirkja- og veitunefnd - 13

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:11:52

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 21. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
    2. 5.2 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
    3. 5.3 Tenging vatnsveitu við sumarbústaðarlandið í Skuggarhlíðarhálsi (Seldal)2304176
    4. 5.4 Uppsetning Mílu á fjarskiptamastri á Fjarðabyggðahöllinni Reyðarfirði2304066
    5. 5.5 Skólalóð Grunnskóla Reyðarfjarðar2304099
    6. 5.6 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021
  6. 6. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 23

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:30:04

    Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 18. apríl utan liðar 9 staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
    2. 6.2 Strandgata 98B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2304049
    3. 6.3 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Smiðjustígur 42304056
    4. 6.4 Umsókn um lóð Litlagerði 62304045
    5. 6.5 Framkvæmdaleyfi Fell skógrækt2304051
    6. 6.6 Tilkynning um kæru v Hafnargötu 36 FÁSK2304061
    7. 6.7 Númerslausir bílar 20232304069
    8. 6.8 Deiliskipulag Nes- og Bakkagil23033681:31:00
    9. 6.9 Umferðaröryggi milli leikskóla og Heiðavegs 7 Reyðarfirði23040971:32:24
    10. 6.10 Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt2208107
    11. 6.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Melagata 132304103
  7. 7. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 24

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 24. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 7.1 Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar2010159
  8. 8. Félagsmálanefnd - 164

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:33:48

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 11. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 8.1 Drög að reglum um stuðningsþjónustu23030341:35:12
    2. 8.2 Memaxi samskipta- og skipulagslausn23040211:33:48
    3. 8.3 Búsetuúrræði-Trúnaðarmál2301106
  9. 9. Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 1

    Mál 2304190 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:36:08

    Bæjarstjóri mælti fyrir viðauka við fjárhagsáætlun 2023.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar viðauka 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2023. Viðaukinn fjallar um áhrif gerðra kjarasamninga á launáætlun 2023. Launaliðir fjárhagsáætlunar hækka í deildum og málaflokkum skv. sundurliðun um 204,8 m.kr. og á móti lækki launakostnaður í málaflokki 21 sameiginlegur kostnaður um sömu fjárhæð en þar var gert ráð fyrir launakostnaði til að mæta kjarasamningshækkunum. Breytingin hefur engin áhrif á rekstrarkostnað samstæðu Fjarðabyggðar eða fjárhagsstöðu.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka 1 við fjárhagsáætlun ársins 2023.

  10. 10. Reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar

    Mál 2304136 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:38:56

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir reglum.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglur um fjárhagsáætlun.

  11. 11. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar, breytingar - síðari umræða

    Mál 2205294 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:39:52

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á samþykkt.

    Vísað frá bæjarráði til síðari umræðu í bæjarstjórn drögum að uppfærðum breytingum á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar vegna 12. gr., sbr. 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, með síðari breytingum ásamt breyttu ferli við endurnýjun lóðaleigusamninga. Efnislega eru ekki breytingar á fyrri tillögu.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.

  12. 12. Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu - síðari umræða

    Mál 2301026 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:40:48

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir samningi um barnaverndarþjónustu og fullnaðarafgreiðsluheimildir.

    Vísað frá bæjarráði til síðari umræðu bæjarstjórnar samningi um barnaverndarþjónustu milli Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar ásamt fylgiskjal um fullnaðarafgreiðsluheimildir.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum samning um barnaverndarþjónustu milli Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar ásamt fullnaðaragreiðsluheimild til starfsmanna barnaverndarþjónustu.

  13. 13. Erindisbréf félagsmálanefndar - fyrri umræða

    Mál 1805116 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:42:12

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á erindisbréfi.

    Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu í bæjarstjórn uppfærðu erindisbréfi fyrir félagsmálanefnd m.a. vegna breyting á hlutverkum nefndarinnar í barnaverndarmálum og því að rekstur hjúkrunarheimila hefur verið færður yfir til Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa erindisbréfi til síðari umræðu bæjarstjórnar.

  14. 14. Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar - fyrri umræða

    Mál 2205298 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:42:40

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á erindisbréfi.

    Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu í bæjarstjórn drögum að uppfærðu erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar en lítilsháttar breytingar hafa verið gerðar í samræmi við breytingar á samþykkt sveitarfélagsins um afgreiðslu á endurnýjun lóðarleigusamninga, gr. 12. um fullnaðarafgreiðslur.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa erindisbréfi til síðari umræðu bæjarstjórnar.

  15. 15. Siðareglur kjörinna fulltrúa

    Mál 1805176 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:43:08

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðun á reglum.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar endurskoðuðum siðareglum kjörinna fulltrúa. Bæjarráð lagið til breytingu á 11. gr. vegna tímasetningar endurskoðunar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum siðareglur kjörinna fulltrúa.

  16. 16. Drög að reglum um stuðningsþjónustu

    Mál 2303034 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:44:04

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðun á reglum.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að endurskoðun á reglum fyrir stuðningsþjónustu.

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum uppfærðar reglur um stuðningsþjónustu.

  17. 17. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026

    Mál 2205170 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:47:20

    Forseti mælti fyrir breytingu nefndaskipunar.

    Framlagt bréf frá Bjarney Hallgrímsdóttir um úrsögn úr íþrótta- og tómstundanefnd og fræðslunefnd vegna búferlaflutninga.

    Lagt er til að Birgir Jónsson taki sæti Bjarneyjar sem varmaður í íþrótta- og tómstundanefnd ásamt því að Sævar Arngrímsson taki sæti hennar sem varamaður í fræðslunefnd.

    Samþykkti bæjarstjórn samhljóða breytingu nefndarskipunar.

  18. 18. Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar

    Mál 2010159 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:48:16

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir deiliskipulagsbreytingu.

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingum á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar til samþykktar ásamt svörum við athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar.

  19. 19. Fundaáætlun bæjarstjórnar

    Mál 2210125 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:48:44

    Framlögð tillaga forseta bæjarstjórnar um að bæjarstjórnarfundur sem áformaður er 4. maí verði fluttur til fimmtudagsins 11. maí 2023 á hefðbundinn fundartíma.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu forseta.