Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 1
Mál 2304190 Fyrst á dagskrá 24. apríl 2023, síðast 27. apríl 2023. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 27. apríl 2023, frá 1:36:08
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2023
Bæjarráð, fundur 796 liður 8
Lagður fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2023. Viðaukinn fjallar um áhrif gerðra kjarasamninga á launáætlun 2023.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 352 liður 9
Bæjarstjóri mælti fyrir viðauka við fjárhagsáætlun 2023.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar viðauka 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2023. Viðaukinn fjallar um áhrif gerðra kjarasamninga á launáætlun 2023. Launaliðir fjárhagsáætlunar hækka í deildum og málaflokkum skv. sundurliðun um 204,8 m.kr. og á móti lækki launakostnaður í málaflokki 21 sameiginlegur kostnaður um sömu fjárhæð en þar var gert ráð fyrir launakostnaði til að mæta kjarasamningshækkunum. Breytingin hefur engin áhrif á rekstrarkostnað samstæðu Fjarðabyggðar eða fjárhagsstöðu.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka 1 við fjárhagsáætlun ársins 2023.
Upptaka bæjarstjórnarfundar 352. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 1:36:08 höndækjafélagsnæði númer hundrað sextíu og fjórir samþykktu með nýju atkvæðinu þá erum við komin í almenn mál og fyrsta almenna málið er fjárhagsáætlun tvö stuttugu og þrjú við auki eiki og það er bæjarstjóri jón árni þórðardóttir sem mun mæla fyrir þessum lið gjörssonar
- 1:36:36 lægður er fráum viðyggja eitt við fjárhagsáætlun fjarðarbyggðar fyrir áratugum tuttugu og þrjú það var þannig við gerð fjárhagslunnar að það var gerð ráð fyrir ákveðnum launabreytingar forsendum í tengslum við áhrif kjarasamninga við gerð fjarðhagsáttarinnar það svigrúðum sem var sett inn í fjárhagsafhlaun var hýst á ákveðnvita ákveðn
- 1:37:04 hún var hýst á ákveðnum lið á meðan beðið væri eftir niðurstöðu kjarasamninga nú má eiginlega segja að fyrsta þurrey lota kjarasamningar liggi fyrir og er þessi viðauki ætlaður til að dreifa þá út út úr þessum sameiginlega lið á áhrifum á þegargerða kjarasamningar
- 1:37:32 það hefur þegar fjallað um viðaukanir fyrir sitt landi og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar
- 1:38:00 mér sýnist enginn vera að biðja um orðið þá ætla ég rétt strax að bera viðaukan upp til sambæktar
- 1:38:28 vantar einn bæjarfulltrúa í salinn
-
Bæjarstjórn, fundur 352 liður 3.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 796“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.