Bæjarráð, fundur 795
17. apríl 2023, kl. 08:30 til 11:15, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 352 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Jóhanna Sigfúsdóttir, Kristinn Þór Jónasson, Ragnar Sigurðsson, Elís Pétur Elísson, Birgir Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 17. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2303071 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur og fjáfestingar Fjarðabyggðar fyrir janúar - febrúar 2023 og skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - mars 2023.
Framlagt og kynnt.
-
2. Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023
Mál 2303238 Allur ferill málsins
Fulltrúar Deloitte kynntu tillögur sínar um framkvæmd stöðuúttektar.
Bæjarráð samþykkir að leita samninga við Deloitte um gerð stöðuúttektar. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi og undirrita.
-
3. World Hydrogen Summit 2023
Mál 2304074 Allur ferill málsins
Atvinnu- og þróunarstjóri leggur til kynningar minnisblað vegna ráðstefnunnar World Hydrogen Summit sem haldin er ár hvert í Rotterdam daganna 9. til 11. maí.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða málið og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
4. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
Mál 2302021 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað varðandi fyrirkomulag og kostnað við uppsetningu og rekstur grendarstöðva í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að vísa opnun grenndarstöðva í Fjarðabyggð til fjárhagáætlunargerðar 2024. Fyrirkomulag þjónustu mótttökustöða á árinu 2023 verði endurskoðað með tilliti til þarfa fyrir lágmarksopnun til að þjónusta einstaklinga. Tillögur sem samþykktar voru fyrir 22. febrúar 2023 verði að öðru leyti útfærðar og komið í framkvæmd. Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar og mannvirkja- og veitunefndar til útfærslu.
-
5. Fjarskipatasamband í fólkvang Neskaupstaðar
Mál 2304065 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Björgunarsveitarinnar Gerpis um fjarskipatasamband í fólkvanginum í Neskaupstað.
Bæjarráð felur bæjarritara að ræða við fjarskiptafyrirtæki og leggja áherslu á öryggisþátt svæðissins.
-
6. Drög að reglum um stuðningsþjónustu
Mál 2303034 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að endurskoðun á reglum fyrir stuðningsþjónustu.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
7. Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 21.apríl 2023
Mál 2304053 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð aukaaðalfundar samtaka orkusveitarfélaga 2023.
Bæjarráð felur Ragnari Sigurðssyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á aukaaðalfundinum.
-
8. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Mál 2301183 Allur ferill málsins
Fundargerð 921. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar.
-
9. Félagsmálanefnd - 164
Framlögð fundargerð félagsmálanefndar frá 11. apríl til afgreiðslu.
- 9.1 Drög að reglum um stuðningsþjónustu2303034
- 9.2 Memaxi samskipta- og skipulagslausn2304021
- 9.3 Búsetuúrræði-Trúnaðarmál2301106