NefndirMannvirkja- og veitunefnd
Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 12
22. mars 2023, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Elís Pétur Elísson, varaformaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 790 liður 18
Fundargerð 12. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 22. mars tekin til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 350 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 22. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fiskeldissjóður - umsóknir 2023
Mál 2301137 Allur ferill málsins
Kynnt sú vinna sem hefur verið unnin fyrir Fjarðabyggð varðandi sameiningu útrása og væntanlega hreinsun á fráveitu í öllum byggðarkjörnum Fjarðabyggðar. Farið yfir kostnað og umfang verkefnisins. Mannvirkja- og veitunefnd felur forstöðumanni veitna að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.
-
2. Framkvæmdasvið verkefni 2023
Mál 2303230 Allur ferill málsins
Farið yfir framkvæmdir ársins og forgangsröðun verkefna í samræmi við fjárhagsáætlun. Mannvirkja- og veitunefnd felur forstöðumanni veitna að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju.
-
3. Framkvæmdasvið verkefni 2023
Mál 2303230 Allur ferill málsins
Lagður fram samningur um efnisnám á Mjóeyrarhöfn og Klöppum Reyðarfirði. mannvirkja- og veitunefnd felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að klára samninginn og leggja fyrir að nýju.
-
4. Framkvæmdasvið verkefni 2023
Mál 2303230 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi varðandi hleðslustöðvar í Fjarðabyggð frá e1. mannvirkja- og veitunefnd felur forstöðumanni veitna að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju.
-
5. Framkvæmdasvið verkefni 2023
Mál 2303230 Allur ferill málsins
farið yfir viðhaldverkefni ársins. mannvirkja- og veitunefnd felur fasteigna og framkvæmdafulltrúa að vinna málið áfram á milli funda og leggja fyrir að nýju.