NefndirMannvirkja- og veitunefnd
Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 11
17. febrúar 2023, kl. 12:00 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Elís Pétur Elísson, varaformaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
Starfsmenn
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 785 liður 8
Fundargerð 11. fundar frá 17. febrúar Mannvirkja- og veitunefndar lögð fram til staðfestingar. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.
Bæjarstjórn, fundur 348 liður 6
Fundargerð 11. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 17. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tók: Elís Pétur Elísson
Fundargerð 11. fundar mannvirkja- og veitunefndar er samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
Mál 2302021 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að breytingum á Sorpmiðstöð Fjarðabyggðar. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir framlagðar tillögur sem meðal annars fjallar um að setja upp grenndarstöðvar í öllum byggðarkjörnum og samhliða því að breyta opnunartíma á móttökustöðvunum í öllum byggðarkjörnum. Innleiðing klippikorta tekur gildi 1. júní 2023 á móttökustöðvum. Framlagðar breytingar eru í samræmi við þær lagabreytingar er tóku gildi 1. janúar 2023.