Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMannvirkja- og veitunefnd

Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 10

1. febrúar 2023, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Elís Pétur Elísson, varaformaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 783 liður 6

    Fundargerð 10. fundar mannvirkja- og veitunefndar lögð fram til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 347 liður 3

    Fundargerð 10. fundar mannvirkja- og veiturnefndar frá 1. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tók: Stefán Þór Eysteinsson

    Fundargerð 10. fundar mannvirkja- og veiturnefndar frá 1. febrúar er samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Framkvæmdasvið verkefni 2022

    Mál 2204123 Allur ferill málsins

    Farið yfir þær framkvæmdir sem verða helstar á árinu 2023 og hvað var gert á árinu 2022.

    Nú hafa framkvæmdir staðið yfir í íþróttahúsinu á Eskifirði og það sem búið er að rífa lítur betur út en á horfðist miðað við það sem var opnað fyrst. Sérfræðingar EFLU koma um miðjan febrúar til að vinna úttekt á íþróttahúsinu og grunnskóla Eskifjarðar og munu taka sýni ef þeir telja þörf á. EFLA mun leggja fram úrbótaáætlun í framhaldi af þeirri vinnu.

    Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna tillögu að gatnaframkvæmdum ársins og leggja fyrir nefndina á næsta fundi.

  2. 2. Grunnskólabörn Fáskrúðsfjarðar - Umferðaröryggi, gangbrautir og lýsing

    Mál 2301205 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísar erindi frá börnum í 3. og 4. bekk í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar varðandi umferðaröryggi á Fáskrúsðfirði til úrvinnslu í nefndinni.

    Mannvirkja- og veitunefnd þakkar fyrir erindið og felur forstöðumanni veitna að vinna málið áfram í samstarfi við forsvarsmenn Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar.