Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMannvirkja- og veitunefnd

Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 9

11. janúar 2023, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Elís Pétur Elísson, varaformaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Jón Grétar Margeirsson

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 780 liður 18

    Fundargerð 9. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 11. janúar lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 345 liður 6

    Fundargerð 9. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 11. janúar lögð fram til staðfestingar.

    Til máls tók Stefán Þór Eysteinsson

    Fundargerð 9. fundar mannvirkja- og veitunefndar er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Eignarsjóður 735 íþróttarhúsið Eskifirði

    Mál 2301058 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar úttekt á íþróttahúsinu á Eskifirði. Mannvirkja- og veitunefnd felur framkvæmdasviði að láta vinna heildarúttekt á húsnæðinu og leggja fram úrbótaáætlun með kostnaðaráætlun vegna framkvæmdanna og leggja fyrir nefndina að nýju.

  2. 2. Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði

    Mál 2301057 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað um niðurstöður á rakaskoðun í grunnskólanum á Eskifirði. Mannvirkja- og veitunefnd felur framkvæmdasviði að láta vinna heildarúttekt á húsnæðinu og leggja fram úrbótaáætlun með kostnaðaráætlun vegna framkvæmdanna og leggja fyrir nefndina að nýju.

  3. 3. Erindi frá íbúum í Breiðablik

    Mál 2210032 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá íbúum í Breiðablik í Neskaupstað um aðstöðu þeirra í húsnæðinu og ráðstöfun þess. Mannvirkja- og veitunefnd felur framkvæmdasviði að fara yfir erindið í samstarfi við félagsmálanefnd og ræða við íbúa og leggja fyrir að nýju.

  4. 4. Úttekt á stöðu og framtíðarhorfur nýtingar jarðhita til húshitunar

    Mál 2211146 Allur ferill málsins

    Að beiðni Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins (URN) hefur ÍSOR (Íslenskar orkurannsóknir) tekið sér að gera úttekt á stöðu nýtingar og framtíðarhorfum hjá hitaveitum landsins. Lagt fram til kynningar bréf þar sem gerð er grein fyrir þessu verkefni.

    Mannvirkja- og veitunefnd felur forstöðumanni veitna að vinna framtíðarsýn fyrir Hitaveitu Eskifjarðar og skoða frekari möguleika á jarðhita nýtingu í Fjarðabyggð.

  5. 5. 735 Bleiksárhlíð 55 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi og stækkun lóðar

    Mál 2205136 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Bleiksárhlíð 55, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning. Nefndin vísar málum er varðar aðgengi að íbúðarhúsinu áfram til mannvirkja- og veitunefndar. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir að íbúar að Bleiksárhlíð 55, Eskifirði geri aðgengi að húsinu er rúmast innan lóðarstækkunarinnar með fyrirvara um skriflegt samþykki aðliggjandi lóðarhafa.

  6. 6. Reglubundið eftirlit - Drög að eftirlitsskýrslu vegna Fjarðabyggð Rimi Mjóafirði_Fjarðabyggð Rimi Mjóafirði

    Mál 2211164 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar eftirlitsskýrsla á urðunarstaðnum Rima í Mjóafirði frá Umhverfisstofnun