Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 783

6. febrúar 2023, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varamaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 347 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs 783. og 784. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman utan liðar 9 í fundargerð 783.

    Til máls tók: Stefán Þór Eysteinsson,

    Fundargerð bæjarráðs nr. 783 og 784. utan liðar 9 í fundargerð 783 er samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2204062 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur, launakostnað og fjárfestinga á árinu 2022.

  2. 2. Erindi frá Austurbrú og SSA um þátttöku í nýju verkefni

    Mál 2301163 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar stofnsamningur um nýsköpuanar verkefnið Eygló. Fjarðabyggð er aðili að samningnum ásamt öðrum sveitarfélögum á Austurlandi, Austurbrú, SSA, Landsvirkjun og Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu. Bæjarráð hafði áður samþykkt þátttöku í verkefninu.

  3. 3. Tjaldsvæði 2022

    Mál 2203199 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra vegna funda með rekstraraðila hluta tjaldsvæða Fjarðabyggðar, Landamerki og Fjallmann Solutions. Bæjarstjóra ásamt atvinnu-og þróunarstjóra falið að gera viðauka við gildandi samning þar sem gildistími verður færður fram til hausts 2023.

  4. 4. Boðun XXXVIII. landsþings sambandsins 31. mars 2023

    Mál 2301210 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem halda á 31. mars nk.

  5. 5. Breyting á leigusamningi um Hafnargötu 2

    Mál 2301033 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að breytingu á leigusamningi Fjarðabyggðar vegna Hafnargötu 2 á Reyðarfirði fyrir bæjarskrifstofur. Bæjarráð samþykkir framlagðar breytingar á leigusamningnum og felur bæjarstjóra að vinna áfram að honum og undirritun hans í framhaldi af því.

  6. 6. Mannvirkja- og veitunefnd - 10

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 10. fundar mannvirkja- og veitunefndar lögð fram til afgreiðslu

    1. 6.1 Framkvæmdasvið verkefni 20222204123
    2. 6.2 Grunnskólabörn Fáskrúðsfjarðar - Umferðaröryggi, gangbrautir og lýsing2301205